Telur fólk geta orðið 1000 ára 15. mars 2005 00:01
Mun fólk geta orðið þúsund ára? Erfðafræðingur við Cambridge-háskóla fullyrðir að rannsóknir á stofnfrumum geri slíkt kleift. Hann nær þó ekki að sannfæra þá sem stunda slíkar rannsóknir hér á landi. Breskir fjölmiðlar hafa undanfarið fjallað um störf doktors Aubreys de Greys sem starfar við Cambridge-háskóla. Sá segist fullviss um að einhverjir sem eru á barnsaldri í dag geti orðið 1000 ára gamlir. Í breska dagblaðinu Daily Mail er haft eftir de Grey að eftir áratug verði hægt að tvöfalda líftíma músa og það sama eigi við um menn eftir um 25 ár. Þegar það takist segir hann ekkert því til fyrirstöðu að við getum lifað svo öldum skipti. Og lykillinn, að mati de Greys, eru rannsóknir á stofnfrumum. De Grey er sagður stórsnjall, prýddur prófgráðum í bak og fyrir, en kenningar hans eru umdeildar. Við Blóðbankann hafa verið gerðar rannsóknir á stofnfrumum síðasta áratug og Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir þar, segir kenningar um eilíft líf gjörsamlega úr lausu lofti gripnar, líklega settar fram til að næla í styrkveitingar. Miklar vonir séu bundnar við rannsóknir á stofnfrumum þótt ekki snúist þær um eilíft líf heldur meðferð við illkynja sjúkdómum. Sveinn segir að stofnfruman hafi verið talin geyma mjög áhugaverða eiginleika því að hún geti lifað mjög lengi. Þess vegna hafi margir haft áhuga á því að skoða hvað stýri þessum eiginleikum og hvort þar liggi leyndardómarnir á bak við langlífi. Þá segir Sveinn að kannski megi vona það að de Grey hafi rangt fyrir sér, nógu erfitt sé að hlúa sómasamlega að fólki í þá áratugi sem það lifir í dag. Aðspurður hvort það sé eftirsóknarvert að verða þúsund ára, ef menn gefa sér að de Grey hafi rétt fyrir sér, segir Sveinn að maður yrði orðinn ansi þreyttur við þann aldur.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira