Bíldudalslögin hrönnuðust inn 15. mars 2005 00:01 "
Þetta lofar mjög góðu, lögin hafa hrannast inn," segir Pétur Bjarnason, Bílddælingur og framkvæmdastjóri SÍBS, en hann er formaður dómnefndar lagasamkeppni sem Arnfirðingar efna til í tengslum við sumarhátíðina Bíldudals grænar. Skilafrestur rann út í gær og kemur dómnefndin saman til fyrsta fundar í dag til að fara yfir lögin. Góð þátttaka kemur Pétri ekki á óvart enda sveitungar hans músíkalskir með eindæmum, líkt og hann sjálfur. "Þetta er mjög tónelskt samfélag og annar hver maður, og jafnvel meira, spilar eða syngur." Þegar Bíldudals grænar voru haldnar fyrir tveimur árum var tónlistin í hávegum höfð og margir dustuðu rykið af hljóðfærunum. "Þá voru uppvaktar sex eða sjö hljómsveitir sem höfðu starfað fyrir vestan og á vísnakvöldi komu fram á milli 30 og 40 manns." Sjálfur var Pétur í bransanum, lék á bassa með þeirri landskunnu stuðsveit Facon frá Bíldudal þar sem söngvarinn Jón Kr. fór fremstur í flokki. "Ég var settur á bassann tveimur dögum fyrir ball á sínum tíma og hafði ekki séð svoleiðis hljóðfæri nema úr tíu metra fjarlægð en kunni aðeins á gítar," rifjar Pétur upp. "Það gerði sig samt, menn voru ekki kröfuharðari en þetta." Fyrir tveimur árum kom Facon saman á nýjan leik og Pétur útilokar ekki að slíkt gerist aftur í sumar. "Það er hugsanlegt að við reynum að rifja eitthvað upp." Mikinn tónlistaráhuga Bílddælinga rekur Pétur til yfirskilvitlegra afla. "Það eru galdrar þarna og svo eru menn innblásnir af náttúrufegurðinni; fjöllum og fjörðum." Það kemur í ljós í byrjun maí hvaða lag verður einkennislag Bíldudals grænna þetta árið og víst að margir bíða spenntir.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira