Sigldi á Stórabeltisbrúna 4. mars 2005 00:01
Eins úr áhöfn flutningaskips er enn saknað eftir að skipinu var siglt á Stórabeltisbrúna í Danmörku í gærkvöld. Áhöfninni var að öðru leyti bjargað, níu manns, en þrír fluttir slasaðir á sjúkrahús. Orsakir slyssins eru óljósar. Þetta er alvarlegasta slys sem orðið hefur síðan umferð var hleypt á Stórabeltisbrúna árið 1997, en hún liggur milli Fjóns og Sjálands. Flutningaskipið er 3500 tonn og gert út af dönsku fyrirtæki en skráð á Bahamaeyjum. Það var á leið frá Svendborg um Stórabeltið norður og til Finnlands. Lóðsmaður var um borð í skipinu þegar það sigldi frá Svendborg en fór frá borði við Langeland-eyju sem liggur suðaustan við Fjón. Þaðan hefði leiðin í norður undir brúna átt að vera greið en eigendur skipsins og dönsk yfirvöld furða sig á þeirri leið sem skipstjórinn valdi og leiddi til árekstursins 800 metrum frá strönd Fjóns. Áreksturinn var svo harður hluti stýrishússins rifnaði. Skipstjórinn er einn hinna þriggja sem slösuðust, en hann rifbeinsbrotnaði. Í áhöfn voru 10 Króatar og er annars stýrimannsins saknað. Seint í gærkvöldi tókst að draga flutningaskipið frá Stórabeltisbrúnni með dráttarbáti, en það var fjórum tímum eftir atvikið og var opnað fyrir umferð um brúna í kjölfarið. Fyrst um sinn verða þó hraðatakmarkanir í gildi og má því búast við seinkunum. Flutningaskipið skildi eftir sig gat sem nemur 2,5 sinnum 5 metrum en rekstraraðilar brúarinnar segja það ekki hafa áhrif á burðarvirki hennar. Mögulegt er að sjálfvirkt vöktunarkerfi hafi bilað en það samanstendur af ratsjárbúnaði og eftirlitsmyndavélum sem fylgjast með skipaumferð. Það á að senda viðvaranir þegar hætta er á árekstri nokkrum mínútum áður en slíkt gerist en það gerðist þó ekki í gær. Þó er vitað að skipstjórinn tilkynnti sig inn á öryggiskerfið. Rætt hefur verið um að endurnýja kerfið frá árinu 2002 og einnig hefur verið gagnrýnt að ekki sé skylt að lóðsmaður sé um borð í skipum sem eiga leið undir Stórabeltisbrúna.
Erlent Fréttir Mest lesið Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Innlent Gular viðvaranir í kortunum Veður Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Innlent Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Innlent Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Innlent Takmarkið „enn sem komið er“ ekki að steypa klerkastjórninni af stóli Erlent Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Innlent Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Innlent Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Innlent Lýsa eftir Hlyni Innlent Fleiri fréttir Hátt í sjö hundruð látist í árásum Ísraela Takmarkið „enn sem komið er“ ekki að steypa klerkastjórninni af stóli Árásir halda áfram meðan fundað er í Genf Hyggst eftirláta á annað hundrað börnum sínum Telegram-auðinn Skrefi nær því að leyfa dauðvona fólki að leita sér dánaraðstoðar Sporvagni ekið inn í matarvagn í Gautaborg Danskur ráðherra kann ekki að meta auglýsingar Meta Hafnar tillögu um að verja fimm prósentum í varnamál Utanríkisráðherrar funda um Íran í Genf Frestar aftur TikTok-banni Kynnti sér mögulegar árásir: „Að klára verkið þýðir að rústa Fordo“ Áhlaup ICE og óvissan veldur vandræðum Farið í gegnum „kolefnisþakið“ eftir þrjú ár Sagði Khamenei „nútíma Hitler“ og að markmiðið sé að fella hann Geimskipið sprakk á jörðu niðri Finnar draga sig út úr sáttmála gegn jarðsprengjum Leita „fjandskapar“ á samfélagsmiðlum námsmanna Tala látinna í Kænugarði komin í tuttugu og átta Tugir særðir í Ísrael eftir árás Írana á spítala Vill ekki í stríð en segir klerkastjórnina ekki mega eignast kjarnorkuvopn Staðfesta bann á meðferð trans barna Óttast um líf fjölskyldu sinnar í Íran: „Ég sef ekki á nóttunni“ Fjórtán tonna sprengjan sem Ísraela vantar „Kannski geri ég það, kannski geri ég það ekki“ Færðu barn heiladauðrar konu í heiminn Rekja rafmagnsleysið á Íberíuskaga til mistaka orkufyrirtækja Íranir hóta „óbætanlegu tjóni“ skerist Bandaríkin í leikinn Sænsk „sorpdrottning“ hlaut þungan fangelsisdóm fyrir umhverfisbrot Tugir drepnir á meðan þau biðu eftir matarskammti Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur Sjá meira