Er allt vænt sem vel er grænt? 21. febrúar 2005 00:01
Þeim fjölgar stöðugt sem sneiða hjá kjöti og fiski og neyta þess í stað einungis grænmetis og jurtafæðis. Þeir sem hafa tileinkað sér svonefnt vegan-mataræði ganga skrefinu lengra því þeir sniðganga allan mat sem inniheldur snefil af dýraafurðum, bæði af siðferðisástæðum og vegna þess að þeir telja að slíkur matur sé einfaldlega miklu hollari en sá hefðbundni. Mjólkurafurðir og egg eru á meðal þess sem vegan-fólk neitar sér um svo og matvæli sem innihalda aukaefni sem eru komin úr dýraríkinu. Ýmsar súkkulaðitegundir innihalda lesitín sem er unnið úr mjólk og í sojaostum sem seldir eru hérlendis er mjólkurduft. Kjötið létti lundina Deildar meiningar eru hins vegar um hvort rétt sé að setja ung börn á vegan-mataræði. Í nýlegri bandarískri rannsókn er því haldið fram að slík fæða sé þeim beinlínis skaðleg þar sem ýmis næringarefni sem börnum eru nauðsynleg eru ekki fyrir hendi í vegan-mat. Forvígismaður rannsóknarinnar heldur því fram að börn mæðra sem sneiða alfarið hjá mat úr dýraríkinu séu smávaxnari og meira seinþroska en börn sem fá kjöt og mjólk reglulega. "Það er því siðferðislegur ábyrgðarhluti að setja ung börn á strangan vegan-kúr." 544 afrísk börn tóku þátt í rannsókninni og höfðu þau öll alist upp á korn- og baunamat sem er snauður af bætiefnum á borð við járn, sink og B12-vítamíni. Um tveggja ára skeið var sumum þessara barna gefið dálítið kjöt daglega, önnur fengu mjólkurglas á dag og hjá enn öðrum var mataræðið óbreytt. Þau börn sem fengu kjöt og mjólk tóku að dafna betur og sýna meiri framfarir í skóla en hin börnin. Auk þess voru þau léttari í lund og fjörugri. Vísindamennirnir undirstrikuðu að þótt rannsóknin hefði verið gerð í fátæku samfélagi í Afríku hefði hún beina þýðingu fyrir Vesturlandabúa. Talsmenn vegan-hreyfingarinnar vísa þessum niðurstöðum hins vegar á bug og benda á aðrar rannsóknir sem sýna að börn þeirra séu yfirleitt hraustari en jafnaldrar þeirra sem neyta kjöts. Grænmetisbörnin pattaraleg Margir Íslendingar eru grænmetisætur en vegan-lífsstíll er enn sem komið er ekki mjög algengur. Gyða Hrund Þorvaldsdóttir hefur um nokkurt skeið eingöngu borðað vegan-mat og kveðst aldrei hafa verið hressari. "Ég finn mikinn mun á mér, hef ekki orðið veik eftir að ég sleppti mjólkurafurðum og eggjum, ég er búin að standa af mér allar flensur sem hafa gengið," segir Gyða og bætir því við að mígreni sem áður hrjáði hana sé nánast á bak og burt. Því þarf ekki að koma á óvart að Gyða dregur niðurstöður bandarísku rannsóknarinnar í efa enda segir hún öll nauðsynleg næringarefni fyrirfinnast í vegan-mataræðinu. "Soyabaunin er próteinríkasta afurð í heiminum, tófú er mjög kalk- og steinefnaríkt og omega-3 fitusýran sem allir segja að sé svo mikilvæg úr blessuðum fisknum færðu úr hör- og sólblómafræjum. Grænkál og spínat gefur okkur járn og soyamjólk er oftast kalkbætt." Innan Samtaka grænmetisætna er starfræktur sérstakur mæðrahópur og segir Gyða að börn þessara kvenna séu einhver þau pattaralegustu sem hún hefur á ævi sinni séð, jafnvel yfir kjörþyngd ef eitthvað er. Rannsóknir sýna að konur sem eru á vegan-fæði er síður hætt við brjóstakrabbameini og auk þess er mjólk sem þær framleiða án ýmissa eiturefna sem stundum finnast í brjóstamjólk kvenna sem neyta hefðbundins matar. Offita er nánast óþekkt á meðal grænmetisætna og þeim er jafnframt síður hætt við hjarta- og æðasjúkdómum. Eina vandamálið sem grænmetisætur segjast glíma við hérlendis er fátæklegt úrval af mat sem þeim hentar. Til að bæta gráu ofan á svart eru sojavörur og annar varningur sem tilheyrir vegan-eldhúsinu settur í efra þrep virðisaukaskattsins. Stjórnvöld líta því á hollustuna sem munaðarvöru.
Innlent Menning Mest lesið Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Lífið Stjórn fyrirtækisins hefur formlega rannsókn Lífið Borgarbörnin orðin sveitaballasjúk: „Ef þú ferð þangað sérðu ekki einn síma á lofti“ Lífið Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Tognaður í báðum lærum og blöðrur á öllum tám Lífið Af hverju vinkar Teslan alltaf á sama stað? Lífið Næturskrunið eyðileggi svefninn og ungmennin vansvefta Lífið Coldplay kom óvart upp um framhjáhald forstjórans Lífið Fréttatía vikunnar: Eldgos, heimsókn Ursulu og frægur gítar Lífið „Ég gat ekki haldið aftur tárunum“ Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Eldgos, heimsókn Ursulu og frægur gítar Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Stjórn fyrirtækisins hefur formlega rannsókn Bragason leikur Zeldu prinsessu Borgarbörnin orðin sveitaballasjúk: „Ef þú ferð þangað sérðu ekki einn síma á lofti“ Næturskrunið eyðileggi svefninn og ungmennin vansvefta Ótrúleg upplifun að vera í algjöru myrkri á tónleikum Tognaður í báðum lærum og blöðrur á öllum tám Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Coldplay kom óvart upp um framhjáhald forstjórans Útilokar fimmta hjónabandið: „Ég held ég sé búinn með það“ Sýnishorn úr nýjustu mynd Hlyns Pálmasonar Pete Davidson að verða pabbi: „Nú vita allir að við sváfum saman“ Af hverju vinkar Teslan alltaf á sama stað? Connie Francis er látin „Maður þarf alltaf að hafa augun opin“ „Ég gat ekki haldið aftur tárunum“ Birta og Króli eiga von á dreng Sumarlegt og ofurhollt kínóasalat að hætti Jönu Emma Watson svipt ökuleyfinu Yngsti gusumeistari landsins Sjarmerandi raðhús í 105 Sögufrægur gítar Stones fannst hálfri öld eftir að honum var stolið „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Óútgefinni tónlist Beyoncé stolið úr bíl danshöfundar „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ „Yndislegir vinir gáfu okkur saman í plötubúð“ Sögulegt sveitaball í hundrað ár Boxari selur íbúð með heitum potti og Esju útsýni Sjá meira