Silence of the Grave kemur út í vor 1. febrúar 2005 00:01
Skáldsagan Grafarþögn eftir Arnald Indriðason kemur út í Bretlandi í vor. Þetta er ekki fyrsta bókin sem Arnaldur gefur út á breskum markaði því í fyrrasumar gaf hann út Mýrina hjá útgáfunni Harvill Press. Sú bók fékk mikið lof gagnrýnenda og hældi jafnframt metsöluhöfundurinn Val McDermid bókinni í The Daily Telegraph og sagði hana heillandi innsýn inn í ókunnan heim. Edda er útgefandi Arnaldar hérlendis og er Dröfn Þórisdóttir hjá Eddu Útgáfu bjartsýn á það að Grafarþögn fái góðar viðtökur í Bretlandi líkt og Mýrin. "Við erum að sjálfsögðu bjartsýn á viðtökurnar miðað við gengi Arnaldar í Bretlandi sem og annars staðar en hann hefur verið gefinn út í 22 löndum," sagði hún. Að sögn Drafnar mun bókin kallast Silence of the Grave á ensku. Grafarþögn kom út í Danmörku í janúar á þessu ári og fékk þar frábærar viðtökur. Eins og fram kemur á heimasíðu Eddu Útgáfu gaf gagnrýnandinn Keld Nissen bókinni sex stjörnur af sex mögulegum og sagði Arnald flétta sögur verksins saman af list. "Það er ekki fyrr en á allra síðustu síðunum að lesandinn fær lausn gátunnar, það er vel gert," segir Nissen í gagnrýninni. Einnig segir hann frásögnina lágværa og hryllingssögurnar nísta hjarta lesandans. Í mars síðastliðnum kom bókin út í Þýskalandi þar sem hún hlaut einróma lof gagnrýnenda og komst upp í sjöunda sæti metsölulistans. Engin íslensk bók eða höfundur hefur áður náð svo hátt á þýska listanum. Í Þýskalandi hafa selst yfir þrjúhundruð þúsund eintök af bókum Arnaldar sem er einstakur árangur fyrir íslenska skáldsögu. Einnig hefur hún verið seld til Bandaríkjanna, Hollands, Svíþjóðar, Noregs, Finnlands, Tékklands og nú til Bretlands.
Innlent Menning Mest lesið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Fleiri fréttir Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Sjá meira