Innlent

Hrapaði næstum í sjóinn

Bandarískum flugmanni tókst að lenda heilu og höldnu í Keflavík í gærkvöld eftir að flugvél hans missti afl. Hann sveif hátt í fjörutíu sjómílur áður en honum tókst að ræsa mótorinn aftur. Mikill viðbúnaður var vegna atviksins. Flugmaðurinn var einn um borð í vél af gerðinni Trinidad og var hann að ferja hana frá Bandaríkjunum til Þýskalands. Laust fyrir klukkan níu í gærkvöldi sendi hann út neyðarkall eftir að drapst á mótor vélar hans um 100 sjómílur vestur af Keflavík. Mikill viðbúnaður var. Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út, sem og tvær þyrlur frá hernum á Keflavíkurflugvelli og þyrla danska eftirlitsskipsins Tritons í Reykjavíkurhöfn sett í viðbragðsstöðu. Vél Flugmálastjórnar var einnig send á móti vélinni og fjögur björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Þar að auki var haft samband við skip og flugvélar á þessum slóðum. Þegar drapst á mótornum var flugvélin í rúmlega 21 þúsund feta hæð. Eðli málsins samkvæmt lækkaði hún flugið og var komin niður fyrir 4000 fet þegar flugmanninum tókst að ræsa mótorinn aftur en það eru liðlega 1200 metrar, eða litlu hærra en Esjan. Þegar afl komst á flugvélina aftur var hún um 60 sjómílur vestur af landinu og hafði því svifið í um 40 sjómílur. Þyrlurnar og vél Flugmálastjórnar fylgdu flugmanninum inn á Keflavíkurflugvöll þar sem hann lenti heilu og höldnu laust fyrir klukkan tíu. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er vitað að vélin hafði lent í vandræðum vegna ísingar. Grunur leikur einnig á vélarbilun og hafa íslenskir flugvirkjar unnið að athugun á vélinni í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×