

Sótt að bloggurum
Lög um kosningar í Bandaríkjunum eru flókin og reglur um fjárframlög og pólitískar auglýsingar eru umfangsmiklar. Þar þarf að gefa upp nánast hverja krónu sem látin er af hendi til stjórnmálaflokka eða í kosningabaráttur og ákveðin hámörk eru í gildi varðandi hversu miklu má eyða í kosningum og hvenrig verja megi þeim fjármunum sem frambjóðendur þiggja frá hinu opinbera í kosningabaráttunni.
Kosningarnar í Bandaríkjunum síðasta haust voru hinar fyrstu þar sem netið og sérstaklega bloggsíður eru talin hafa skipt raunverulegu máli. Þessi staðreynd, auk þess að Demókratar telja að bloggheimurinn hafi í heild verið þeim óvilhallur, varð til þess að FEC skoðaði sérstaklega netið og komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri annað hægt en að setja einhvers konar reglur. Þegar fyrstu drög þessara reglna litu dagsins ljós varð uppi fótur og fit enda ljóst að embættismennirnir höfðu annað hvort í hyggju að reyna að kæfa málfrelsi á netinu eða bjuggu yfir stórkostlegri vanþekkingu á eðli netsins.
Tillögurnar fólu meðal í sér að opinbert eftirlit yrði haft með vefsíðum sem taldar eru styðja við tiltekna frambjóðendur eða birta umfjöllun vilhalla stjórnmálamönnum eða stjórnmálaflokkum. Reglurnar ná aðeins til þeirra sem reka síður þar sem menn fá greitt fyrir skrif sín, birta auglýsingar á vefjum sínum eða reka vefsíður í samvinnu við aðra. Þetta er þó ekki skýrt orðað í upprunalegum tillögum og því má auðveldlega álykta sem svo að allar vefsíður þar sem fleiri en einn skrifa yrðu háðar opinberu eftirliti. Á Íslandi hefði þetta til að mynda í för með sér að allar pólitískar vefsíður sem reknar eru af hópum, svo sem Múrinn (murinn.is), Vef-Þjóðvíljinn (andriki.is), Deiglan (deiglan.com), Tíkin (tikin.is) og Skoðun (skodun.is) yrðu að lúta opinberu eftirliti - og ef einhverja pólitík mætti lesa úr síðu á borð við kallarnir.is - þar sem margir skrifa - þá myndu þær einnig falla undir lögin.
Það sýnir ef til vill best hversu fáránlegar reglurnar eru að undanþágurnar eru þær að vefsíður þar sem gestir eru færri en fimm hundruð á mánuði, eða eru læstar þannig að menn þurfi lykilorð til að komast inn, féllu ekki undir reglurnar. Fullyrða má að engin þeirra íslensku vefsíðna sem nefndar voru hér að framan myndu uppfylla þessi skilyrðu jafnvel þótt markaðurinn á Íslandi sé ekki nema einn þúsundasti af þeim bandaríska.
Óheft málfrelsi hefur aldrei í sögunni verið raunhæft fyrr en með tilkomu internetsins. Áður fyrr þjónuðu fjölmiðlar hlutverki hliðvarðar til almennings því ekki gat hver sem er komið sjónarmiðum sínum á framfæri í gegnum fjölmiðla. Með netinu er þetta allt breytt því nú getur hver sem er náð sambandi við hvern sem er án nokkurrar fyrirhafnar. Þetta er veruleiki sem fellur illa að heimmsmynd þeirra sem telja lausn alls vanda vera reglugerðir fremur en almenna skynsemi. Flest rök fyrir takmörkunum í fjölmiðlun eiga við allt annan veruleika en þann sem við búum við í dag.
Ólíkt öllum öðrum leiðum til tjáskipta kostar nákvæmlega ekki neitt að gefa út efni á netinu. Ólíkt dagblaði þarf hvorki að prenta netið eða dreifa því í pósthólf og netið ferðast heldur ekki um loftið með rafsegulbylgjum eins og sjónvarp gerði fyrir daga starfrænna útsendinga. Þessar gömlu aðferðir kosta peninga auk þess sem útsendingar á rafsegulbylgjum eru takmörkuð auðlind þar ekki rúmast óendanlega margar útsendingar. Þessi gamli veruleiki var röskemd fyrir ýsmum takmörkunum í fjölmiðlun og þeir sem alist hafa uppi við þær aðstæður vilja gjarnan yfirfæra gamlar reglur yfir á hið nýja þótt grundvallarröksemdin sé fallin. Þannig verða til reglur sem byggjast á því að höftum á frelsi er viðhaldið þótt röksemdirnar séu fallnar.
Hugmyndir manna um takmarkanir á útsendingum útvarps byggðust á þeirri staðreynd sem þá var uppi að fleiri vildu senda út en pláss var fyrir. Við slíkar aðstæður var eðlilegt að leikreglur væru settar. Þegar hins vegar plássið er óþrjótandi er ekki hægt að réttlæta slíkar reglur því eina röksemdin fyrir slíkri heftingu er að hefta útbreiðslu skoðana - og það eru vonandi flestir sammála um að það sé ekki lögmætt eða eðlilegt markmið í laga- og reglugerðarsetningu.
Þórlindur Kjartansson - thkjart@frettabladid.is
Skoðun

Nýr rektor og 2025 – tímamót í háskólamálum
Ástráður Eysteinsson,Magnús Karl Magnússon,Margrét Helga Ögmundsdóttir,Tinna Laufey Ásgeirsdóttir skrifar

Vonir um vopnahlé eins og hálmstrá
Sveinn Rúnar Hauksson skrifar

Samfélagið innan samfélagsins
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Til hamingju Íslendingar með nýja Óperu
Andri Björn Róbertsson skrifar

Hvers vegna hatar SFS smábáta? Svarið tengist veiðigjöldum
Kjartan Páll Sveinsson skrifar

„Oft er flagð undir fögru skinni“
Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar

Orðhengilsháttur og lygar
Elín Erna Steinarsdóttir skrifar

Fjögurra daga vinnuvika – nýr veruleiki?
Sigvaldi Einarsson skrifar

Ráðherra gengur fram án laga
Svanur Guðmundsson skrifar

Hagkvæmur kostur utan friðlands
Jóna Bjarnadóttir skrifar

Gagnsæi og inntak
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Sumargjöf
Þórunn Sigurðardóttir skrifar

Hannað fyrir miklu stærri markaði
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Grafarvogur framtíðar verður til
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Málþófið um veiðigjöldin vekur miskunnsama Samverja
Sigurjón Þórðarson skrifar

Menntastefna 2030
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Ágætu fyrrum samstarfsaðilar á Þjóðminjasafni Íslands
Uggi Jónsson skrifar

Ferðamannaþorpin - Náttúruvá
Þóra B. Hafsteinsdóttir skrifar

Vonarsvæði fyrir framtíðina – ábyrgð stjórnvalda kallar á verndun
Huld Hafliðadóttir,Heimir Harðarson skrifar

Laxaharmleikur
Jóhannes Sturlaugsson skrifar

Lýðræðið í skötulíki!
Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar

Stærðfræðikennari sem kann ekki að reikna? (Og getur ekki lært það!)
Brynjólfur Þorvarðsson skrifar

Íslendingar greiða sama hlutfall útgjalda í mat og Norðurlöndin
Margrét Gísladóttir skrifar

Til varnar jafnlaunavottun
Magnea Marinósdóttir skrifar

Heimaþjónusta og velferðartækni: Lykillinn að sjálfbæru heilbrigðiskerfi
Auður Guðmundsdóttir skrifar

Barnaræninginn Pútín
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Um þjóð og ríki
Gauti Kristmannsson skrifar

Málfrelsi og mörk þess á vettvangi lýðræðisins
Helga Vala Helgadóttir skrifar

Sjókvíaeldi á Íslandi fjarstýrt með gervigreind frá Noregi
Ingólfur Ásgeirsson skrifar