Mikið um veggjalýs hér á landi 4. ágúst 2005 00:01
Ólafur Sigurðsson hjá Meindýraeyðingu heimilanna segir óvenju mikið hafa verið um veggjalús í húsum Íslendinga síðustu misserin og vill brýna fyrir fólki að það sé á varðbergi gagnvart henni á ferðalögum erlendis. Auðvelt er að sjá ummerki lúsarinnar. "Ég hef verið í þessu í átta ár og fékk lengst af aldrei meira en eitt tilvik í mánuði." Hann segir þetta nú hafa verið nokkur tilvik í mánuði í meira en hálft ár og hann veit til þess að fleiri meindýraeyðar hafi verið að fást við hana. Þótt veggjalúsin berist hingað erlendis getur hún breiðst út hér á landi. Hún fer með veggjum húsa og lætur sig detta niður úr loftinu þegar hún finnur fyrir líkamshita og andardrætti. Síðan gerir hún sér bæli í rúminu þar sem hún nærist með því að sjúga blóð úr sofandi fólki að næturlagi. Sé fæðan næg getur hún fjölgað sér mjög hratt. Ólafur vill að fólk skoði rúm og veggi á gistihúsum erlendis og leiti eftir umerkjum lúsarinnar. "Þetta eru margir litlir dökkir blettir sem geta orðið álíka stórir og nöglin á litlafingri." Fullvaxin veggjalús er fimm millimetrar og sést vel með beru auga. Þær eru rauðbrúnar að lit, en eru þó ljósar í upphafi æviskeiðsins en dekkjast með tímanum. Kvenlúsin getur verpt fimm hundruð eggjum um ævina. Þær koma yfirleitt aðeins fram að næturlagi. Bit veggjalúsarinnar varir í um fimm mínútur, en að því loknu fer hún aftur í bæli sitt. Bitið er ekki talið hættulegt en getur valdið kláða og bólgum. Auk óþægindanna fylgja þeim óhreinindi og jafnvel lykt. Hún getur líka skotið fólki sem hefur verið að heiman í nokkurn tíma skelk í bringu, en dæmi eru þess að fólk nýkomið úr fríi vakni þegar mikill fjölda hungraðra lúsa sest að snæðingi á nánast sama tíma. Veggjalýs voru algengar víða á Vesturlöndum en var að mestu útrýmt á 5. og 6. áratug síðustu aldar með notkun eiturefnisins DDT sem nú hefur verið bannað. Hún hefur nú verið að breiðast út á ný síðustu árin vegna aukinna ferðalaga.
Fréttir Innlent Mest lesið 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Innlent Tók 12 ár að breyta reglum um bætur vegna seinkun flugferða Erlent Sækja WorldPride í skugga bakslags í réttindum hinsegin fólks Innlent Jöklar hér á landi minnkað um eina Lúxemborg Innlent Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið Innlent Beðasléttur í borginni: Óttast óafturkræfan skaða á Laugarnesi Innlent Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Innlent Grófu látin og særð börn upp úr rústum Erlent Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Innlent Klara Baldursdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Jöklar hér á landi minnkað um eina Lúxemborg Sækja WorldPride í skugga bakslags í réttindum hinsegin fólks 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Beðasléttur í borginni: Óttast óafturkræfan skaða á Laugarnesi Fleiri börn deyja á Gasa og óttast um fornminjar í Laugarnesi Ók á gangandi vegfarenda og keyrði burt Umræðu um bókun 35 aftur frestað Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Norðurlandamót í Bridge á Laugarvatni alla helgina Yfirfara þurfi öryggismál við Brúará Enn eitt banaslysið í Brúará, landvinningar lúsmýs og þungarokkshátíð Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið „Ef þetta gengur vel mun hún eignast allan bátinn“ Konan sem féll í Brúará er látin Fimm frumvörp fjögurra ráðuneyta samþykkt Klara Baldursdóttir er látin Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna göngumanns „Kraftmiklar og afgerandi aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi“ „Þegar fjármagnið klárast, þá klárast líka aðgengið“ Hressar og skemmtilegar systur með geitur á Geysi Loka hluta útsýnispallsins vegna aurskriðu Sjávarútvegurinn standi höllum fæti Starfsáætlun Alþingis felld úr gildi Höggin dynji á sjávarútveginum og áhugi kvenna á iðnstörfum minnkar Erlendur ferðamaður féll í Brúará Ein á móti rýmkuðu sorgarleyfi „Erum ekki dúkkur sem Snorri getur sagt fyrir verkum“ Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Missti nánast sjónina þegar sláttuorf skaut steini í annað augað Mál áfengisverslananna komin til ákærusviðs, aftur Sjá meira