Erlent

Livingstone samur við sig

Ken Livingstone, borgarstjóri Lundúna, hefur enn einu sinni sinni vakið athygli fyrir orðaval sitt. Í blaðagrein í Guardian í gær kallaði hann Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, stríðsglæpamann sem ætti fremur að vera í fangelsi en í embætti. Livingstone gæti haft eitthvað til síns máls því aðild Sharons að fjöldamorðum í flóttamannabúðum í Líbanon árið 1982 er flestum kunn. Tímasetning ummælanna er hins vegar óheppileg því á dögunum líkti hann ísraelskum blaðamanni við fangavörð í útrýmingarbúðum nasista.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×