Erlent

Sigldi á Stórabeltisbrúna

Eins úr áhöfn flutningaskips er enn saknað eftir að skipinu var siglt á Stórabeltisbrúna í Danmörku í gærkvöld. Áhöfninni var að öðru leyti bjargað, níu manns, en þrír fluttir slasaðir á sjúkrahús. Orsakir slyssins eru óljósar. Þetta er alvarlegasta slys sem orðið hefur síðan umferð var hleypt á Stórabeltisbrúna árið 1997, en hún liggur milli Fjóns og Sjálands. Flutningaskipið er 3500 tonn og gert út af dönsku fyrirtæki en skráð á Bahamaeyjum. Það var á leið frá Svendborg um Stórabeltið norður og til Finnlands. Lóðsmaður var um borð í skipinu þegar það sigldi frá Svendborg en fór frá borði við Langeland-eyju sem liggur suðaustan við Fjón. Þaðan hefði leiðin í norður undir brúna átt að vera greið en eigendur skipsins og dönsk yfirvöld furða sig á þeirri leið sem skipstjórinn valdi og leiddi til árekstursins 800 metrum frá strönd Fjóns. Áreksturinn var svo harður hluti stýrishússins rifnaði. Skipstjórinn er einn hinna þriggja sem slösuðust, en hann rifbeinsbrotnaði. Í áhöfn voru 10 Króatar og er annars stýrimannsins saknað. Seint í gærkvöldi tókst að draga flutningaskipið frá Stórabeltisbrúnni með dráttarbáti, en það var fjórum tímum eftir atvikið og var opnað fyrir umferð um brúna í kjölfarið. Fyrst um sinn verða þó hraðatakmarkanir í gildi og má því búast við seinkunum. Flutningaskipið skildi eftir sig gat sem nemur 2,5 sinnum 5 metrum en rekstraraðilar brúarinnar segja það ekki hafa áhrif á burðarvirki hennar. Mögulegt er að sjálfvirkt vöktunarkerfi hafi bilað en það samanstendur af ratsjárbúnaði og eftirlitsmyndavélum sem fylgjast með skipaumferð. Það á að senda viðvaranir þegar hætta er á árekstri nokkrum mínútum áður en slíkt gerist en það gerðist þó ekki í gær. Þó er vitað að skipstjórinn tilkynnti sig inn á öryggiskerfið. Rætt hefur verið um að endurnýja kerfið frá árinu 2002 og einnig hefur verið gagnrýnt að ekki sé skylt að lóðsmaður sé um borð í skipum sem eiga leið undir Stórabeltisbrúna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×