Tímamótasamningur 19. mars 2005 00:01
Heildaráhrif kjarasamnings Félags framhaldsskólakennara við ríkið nema 21 prósenti á samningstímanum; frá 1. febrúar 2005 til aprílloka 2008. Samningurinn felur í sér sömu hækkanir og á almennum vinnumarkaði. Stofnanasamningur verður gerður innan hvers framhaldsskóla. "Með samningnum er verið að styrkja innra starf skólanna. Við erum að þróa áfram þá markmiðssetningu að styrkja innra starfið, efla skólastarf og umbætur í framhaldsskólum. Að öðru leyti er samningurinn á sömu nótum og hjá BHM-félögunum," segir Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara. Framhaldsskólakennarar taka upp sams konar launatöflu og launakerfi og BHM-félögin. Ný launatafla tekur gildi 1. maí 2006. Samkvæmt henni verða lægstu laun 200 þúsund krónur á mánuði en í dag eru þau 190 þúsund krónur. "Þetta er tímamótasamningur. Í fyrsta lagi erum við að taka upp sömu launatöflu og sama launakerfi og BHM-félögin. Í öðru lagi er verið að styrkja skólastarfið og innra starf skólanna. Í þriðja lagi er ný hugsun, að efla starfsþróun kennara og framgang þeirra í starfi faglega séð. Samningurinn felur líka í sér ávinning og sóknarfæri til lengri tíma litið," segir hún. Kjarasamningur framhaldsskólakennara er í grunninn gjörólíkur kjarasamningi grunnskólakennara. Grunnskólakennarar sömdu miðlægt en framhaldsskólakennarar eru með rammasamning og svo nánari útfærslu í stofnanasamningum í skólunum. "Hvað kjaralegan ávinning varðar höfum við vissulega haft samning grunnskólakennara til hliðsjónar við okkar samningagerð. Að því leyti hafði hann áhrif á samningaferlið hjá okkur," segir hún. Kjarasamningur framhaldsskólakennara verður kynntur í framhaldsskólunum eftir páska. Stefnt er að því að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar verði ljós í byrjun apríl.
Fréttir Innlent Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Sjá meira