Breytingar leikskólagjalda boðaðar 17. mars 2005 00:01
Leikskólagjöld á Akureyri munu á næstunni lækka um allt að fjórðung og borgarstjórinn í Reykjavík ætlar að kynna breytingar á leikskólagjöldum í dag. Þær breytingar hljóta að vera til lækkunar því borgaryfirvöld boða ekki til blaðamannafundar til að kynna hækkanir á þjónustugjöldum. Lækkunin á Akureyri er háð því að bæjarráð fari að tillögum skólanefndar bæjarins um einföldun og samræmingu gjaldskrárinnar. Verði þetta samþykkt munu leikskólagjöld vegna 650 barna af þeim þúsund, sem eru á leikskólum bæjarins, lækka um fjórðung, eða um 5700 krónur á mánuði á hvert barn. Þetta á við um börn giftra forledra sem hingað til hafa þurft að borga mun hærri gjöld en börn einstæðra foreldra. Hins vegar er ekki sjálfgefið að einstætt foreldri sé fátækt eða að hjón séu rík, segir Sesselja Sigurðardóttir hjá Leikskólum Akureyrar. Í nokkrum tilvikum munu gjöldin hækka en verið er að móta úrræði til að mæta því líka. Útgjaldaauki bæjarins vegna þessa verður 25 til 30 milljónir króna á ári. Fullt gjald fyrir barn hjóna á leikskólum Akureyrar er nú tæp 28 þúsund en verður rúm 22 þúsund. Svo vill til að einmitt þegar þessar breytingar á Akureyri eru að komast í hámæli hefur Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri boðað til blaðamannafundar í dag til að kynna breytingar á leikskólagjöldum í borginni. Væntanlega eru þar einhverjar lækkanir í spilunum líka en ekki fengust nánari útfærslur á þeim fyrir hádegisfréttir. Sérfræðingar í sveitarstjórnarmálum, sem gjarnan líta pólitískum augum á hlutina, telja þetta fyrsta fyrirboða komandi sveitarstjórnarkosninga eftir rúmt ár.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira