Setja Saumastofuna sjálf upp 14. janúar 2005 00:01
Fókus fylgir með DV í dag. Þar er ítarleg úttekt á skemmtanalífinu um helgina. Á djammkortinu er að finna alla staði miðbæjarins og úthverfanna, hvernig stemmningin er og hvað er að gerast. Á sunnudaginn verður leikritið Saumastofan frumsýnt í Borgarleikhúsinu. Nokkrir leiklistarkrakkar tóku sig saman og uppfærðu 30 ára gamalt verk að nýjum tíma. "Við erum ekki að setja upp leikrit um réttindi kvenna. Við viljum sýna áhorfendum skemmtilegan vinnustað með alls konar steríótýpum," segir Alexía Björg Jóhannesdóttir. Hún er einn af sjö ungum leikurum sem frumsýna Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarsson á litla sviði Borgarleikhússins á sunnudaginn. Saumastofan sló í gegn í Iðnó fyrir þrjátíu árum en þá snerist verkið að miklu leyti um kvenréttindabaráttuna. Nú leiddi leikstjórinn Agnar Jón Erlingsson leikhópinn hinsvegar í spuna og heimildarvinnu til að taka persónur og málefni verksins til nútímans. Þetta er því nýtt leikrit með skírskotun til eldra verks Kjartans. Við undirbúning sýningarinnar kynntu leikararnir sér m.a. vinnuaðstöðu ýmissa kvenna í þjóðfélaginu. Alexía fékk að sitja í löggubíl eina föstudagsnótt. "Ég leik vaktstjórann Fjólu Rós, sem er algjör trukkur. Þess vegna langaði mig að eyða tíma með hörkukvensum. Það var frábært og ég sá ýmislegt með þessum svaka löggukonum, sem kalla ekki allt ömmu sína. Ég kynntist líka blíðu hliðinni á þeim." Mörg laganna úr gamla verkinu eru notuð en textarnir uppfærðir í samræmi við nýtt starfsfólk Saumastofunnar nú 30 árum síðar. Búðabandið sér um melódísku hlið sýningarinnar. Leikhópurinn samanstendur af Alexíu, Bjartmari Þórðarsyni, Bryndísi Ásmundsdóttur, Elmu Lísu Gunnarsdóttur, Guðjóni Þorsteini Pálmarssyni, Maríu Pálsdóttur og Ísgerði Elfu Gunnarsdóttir. Ísgerður er aðalsprautan. Fékk þá flugu í höfuðið að setja upp sýninguna og sankaði að sér fólki. Þ.á.m. systur sinni Gunnhildi, sem framleiðir sýninguna. Afganginn af viðtalinu við Alexíu og Saumastofukrakkana má finna í Fókus í dag.
Menning Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Fleiri fréttir Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Sjá meira