Tímabært að gefa útsauminum gaum 27. apríl 2005 00:01
Heimilisiðnaðarfélag Íslands gengst fyrir útsaumshelgi um næstu helgi. Aðalkennarinn er Ríkey Kristjánsdóttir, handavinnukennari og stóráhugamanneskja um íslenskan útsaum. Heimilisiðnaðarfélag Íslands stendur fyrir útsaumshelgi um næstu helgi. Útsaumshelgin hefst á fyrirlestri Ríkeyjar Kristjánsdóttur, textílhönnuðar og handmenntakennara, um íslenskar útsaumsgerðir. Í framhaldinu verður svo námskeið í útsaumi þar sem meðal annars verður farið yfir sögu útsaums á Íslandi, helstu útsaumsgerðir, hlutverk, áhöld og efni, vinnuaðferðir, munsturgerð og hönnun og framtíð útsaums miðað við þróun síðustu ára. Gerðar verða nokkrar saumaprufur og kenndar gamlar aðferðir. Ríkey Kristjánsdóttir útskrifaðist sem handavinnukennari frá Haandarbejdets Fremmes Seminarium í Kaupmannahöfn vorið 2003 með útsaum sem aðalvalfag og textílhönnun sem aukavalfag. "Það var fyrst og fremst áhugi á útsaumi sem dreif mig áfram og mér fannst sérstakt að geta valið útsauminn sem aðalvalgrein," segir Ríkey um ástæðu þess að hún valdi þennan skóla. Ríkey segist frá barnæsku hafa haft mikinn áhuga á handavinnu. "Mér finnst líka eins og útsaumur sé deyjandi list og fannst tímabært að ungar konur lærðu um útsaum," heldur hún áfram. Að mati Ríkeyjar hafa Íslendingar ekki gefið þessari listgrein nægilegan gaum og sem dæmi nefnir hún að enginn útsaumur er kenndur við Listaháskólann. "Útsaumur er að mínu mati bara annað verkfæri til að mála mynd." Frá því að námi lauk hefur Ríkey kennt hand- og myndmennt við Barnaskóla Seyðisfjarðar og haldið handmenntanámskeið, en hún rekur auk þess Hótel Ölduna á Seyðisfirði ásamt sambýlismanni sínum og opnaði í haust verslunina Draumhús þar sem seldir eru indverskir muni og er einnig vinnustofa Ríkeyjar. Guðrún Sigurðardóttir textílkennari verður leiðbeinandi á námskeiðinu ásamt Ríkeyju. Guðrún hefur haldið mörg námskeið og er einnig mikil áhugamanneskja um útsaum. Þær Ríkey hyggjast halda samstarfi sínu um útsaumsnámskeið áfram og halda námskeið víðar um landið. Fyrirlestur Ríkeyjar verður á föstudagskvöldið 29. apríl klukkan 20 og námskeiðið sjálft verður haldið laugardag og sunnudag. Kennt verður í tveimur hópum, kl. 9-13 og 14-18. Námskeiðið verður í húsnæði Heimilisiðnaðarfélags Íslands, Laufásvegi 2. Upplýsingar og skráning er hjá Heimilisiðnaðarfélaginu í síma 551 7800 og 895 0780. Verð á fyrirlesturinn er kr. 1.000 kr. og námskeiðið kostar kr. 10.000. Á námskeiðinu um helgina verða þátttakendur margs vísari um hefðbundinn íslenskan útsaum.
Nám Mest lesið Sannfærð um að hún myndi aldrei geta átt gott líf Lífið Forsetahjónin létu sig ekki vanta Lífið Svaraði eiginmanninum fyrrverandi: „Eldandi, þrífandi og alandi upp börn“ Lífið Fréttatía vikunnar: Þýskaland, hetja og kaffihús Lífið Bieber fékk sér smók í Skagafirði Lífið Mafia: The Old Country - Fínasta afþreying, þó þunn sé Leikjavísir Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Lífið „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Lífið Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ Lífið Fleiri fréttir Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira