Mugison er Vestfirðingur ársins 12. janúar 2005 00:01
Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, sem er betur þekktur undir listamannsnafninu Mugison, er Vestfirðingur ársins 2004 að mati lesenda vefritsins bb.is. Örn Elías hefur staðið sig frábærlega á tónlistarsviðinu á undanförnum árum og sérstaklega á því síðasta, en þá gaf hann m.a. út plötuna Mugimama (Is This Monkeymusic?), sem fjölmargir gagnrýnendur hafa valið bestu plötu ársins. Þá samdi hann tónlistina við kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Næsland, auk þess sem hann er tilnefndur til fimm verðlauna á Íslensku tónlistarverðlaununum sem veitt verða í næsta mánuði. Örn Elías stóð einnig í samvinnu við föður sinn og fleiri aðila fyrir tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður, sem haldin var á Ísafirði um síðustu páska. Með tónlistarhátíðinni varð hin árlega skíðavika á Ísafirði að eftirsóknarverðum viðburði, sem vel var sóttur. Þá hefur Örn Elías verið duglegur við að kynna heimaslóðirnar, eða eins og fjölmargir lesendur sögðu: "Mugison er ein besta kynning sem Vestfirðir hafa fengið um langt skeið." 72 einstaklingar fengu atkvæði í kosningunni, sem stóð frá miðjum desember og fram til áramóta. Atkvæðin voru vel á fjórða hundraðið og fengu þeir sem voru í 1.-4. sæti rúmlega helming þeirra. Faðir Arnar Elíasar, Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri Ísafjarðarbæjar, tók við viðurkenningu sonarins á laugardag, sem eru eignar- og farandgripir sem smíðaðir eru af Dýrfinnu Torfadóttur, gullsmið í Gullauga á Ísafirði. "Þetta er agalega mikill heiður. Ég veit eiginlega ekki alveg hvað ég hef gert svona merkilegt. Persónulega finnst mér það mitt mesta afrek á liðnu ári að hafa barnað unnustu mína," sagði Örn Elías er honum voru tilkynnt úrslitin, en Rúna Esradóttir, verðandi barnsmóðir hans, verður að líkindum léttari eftir um mánuð. "Þar á eftir eru það kannski þessar tvær plötur sem ég gaf út. Svo finnst mér mjög gaman að hafa átt þátt í tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður sem haldin var á Ísafirði um síðustu páska." Aðspurður segist hann vonast til að titillinn "Vestfirðingur ársins 2004" gefi tóninn fyrir það sem koma skuli á þessu ári og vísar þar til fimm tilnefninga sem hann hefur hlotið til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem afhent verða í næsta mánuði. "Það væri gaman. Annars er ég furðu lostinn yfir að hafa hlotið þessi verðlaun. Mér finnst Jón Fanndal Þórðarson helst eiga að fá þau. Bæði ég og pabbi kusum hann. Ef hægt er að deila verðlaununum, þá vil ég deila þeim með Jóni og pabba og lít svo á að þeir séu ekki minni Vestfirðingar en ég." Umræddur Jón Fanndal Þórðarson, verslunarmaður og formaður Félags eldri borgara í Ísafjarðarbæ, varð í öðru sæti í valinu á Vestfirðingi ársins 2004. Hann var einn af forsvarsmönnum Heimastjórnarhátíðar alþýðunnar sem haldin var á Ísafirði á síðasta ári. Í þriðja sæti varð Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður, sem varð í öðru sæti árið 2003, og í fjórða sæti varð Sigmundur F. Þórðarson, húsasmíðameistari á Þingeyri og formaður Íþróttafélagsins Höfrungs. Aðstandendur valsins á Vestfirðingi ársins 2004, Gullauga á Ísafirði, hugbúnaðarfyrirtækið Innn hf. í Reykjavík og bb.is, þakka lesendum þátttökuna og óska þeim og Vestfirðingum öllum velfarnaðar á árinu.
Menning Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Fleiri fréttir Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Sjá meira