Sakar Biblíufélagið um falsanir 17. apríl 2005 00:01
Guð er orðinn gamall og hallærislegur í augum þjóðkirkjunnar, segir Gunnar Þorsteinsson í Krossinum. Hann gagnrýnir harðlega Hið íslenska Biblíufélag fyrir að falsa ritningarnar í nýrri þýðingu og segir ýmsa vilja koma að nýrri útgáfu þar sem Guðs orð fái að njóta sannmælis. Hið Íslenska Biblíufélag hefur undanfarin ár unnið að nýrri þýðingu Biblíunnar. Gunnar Þorsteinsson í Krossinum sakar félagið um guðlast og segir það vera í gíslingu lúterskra manna sem hafi notfært sér aðstöðuna til að hnika til og falsa texta hinnar heilögu ritningar. Hann telur að trúnaðar við texta hafi ekki verið gætt í nýrri þýðingu og að Biblíufélagið hafi farið langt út fyrir umboð sitt, sem hann segir menn ekki geta sætt sig við. Þar séu menn að ganga yfir orð Guðs og lýsa því yfir með þessum vinnubrögðum að hugsanir þeirra og viðhorf sé æðra en en orð Guðs. Aðspurður hvað hann eigi við segir Gunnar að Biblíufélagið geri þetta með því að breyta textanum í Biblíunni, ekki aðeins með því að þýða hann eftir tíðarandanum heldur hreinlega breyta honum. Texti sé felldur niður og bætt inn í hann og því heyrist þær raddir úr hans hópi að hópurinn eigi ekki samleið með þessari þýðingu. Menn vilji að farið verði af stað með nýja þýðingu þannig að Guðs orð fái að njóta sannmælis og virðing fyrir textanum sé í forgrunni og öndvegi, en þannig eigi það að vera í Biblíuþýðingu. Gunnar gagnrýnir ennfremur Morgunblaðið vegna málsins og segir blaðið hafa vegsamað falsanirnar í ritstjórnarpistli í síðustu viku. Hann telur Hið íslenska Biblíufélag hafa svikið Guð sinn og sakar þjóðkirkjuna um valdníðslu. Það sé ljóst að hún eigi ekki lengur samleið með texta Biblíunnar, Guð sé orðin gamall og hallærislegur, en þjóðkirkjan verði að finna aðrar leiðir en að falsa ritningarnar.
Fréttir Innlent Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sjá meira