Kann unga fólkið ekki að spara? 31. mars 2005 00:01
Gleymdi verðbólgukynslóðin að kenna börnunum sínum að spara? Íslensk ungmenni líta svo á að hafi fólk ekki efni á hlutunum, þá séu bara tekin lán. Samkvæmt upplýsingum frá Ráðgjafastofu heimilanna er sá hópur sem skuldar mest fólk á aldrinum 30 til 40 ára en sá hópur er einnig tekjuhæstur. Að komast í fjárhagserfiðleika um þrítugt er ekkert sem gerist einn tveir og þrír. Forstöðumaður ráðgjafastofunnar segist hafa miklar áhyggjur af yngra fólki, ekki síst með tilkomu 100 prósent íbúðarlána og öflugri markaðssetningu lánastofnana. Upphaf fjármálaóreiðu getur byrjað ósköp sakleysislega, kannski með yfirdráttarláni framhaldsskólanema. Í kjölfarið er farið út í bílakaup á lánum, þá taka kreditkortin við til að fjármagna neyslu sem þýðir að skuldir hrannast upp áður en fólk fjárfestir í húsnæði og stofnar fjölskyldu. Í samnorrænni rannsókn sem SÍNE vann fyrir Íslands hönd, á fjármálum og greiðslubyrði framhaldsskólanema kom fram að íslensk ungmenni eru sammála um að við búum í efnishyggjuþjóðfélagi þar sem máli skiptir að eiga allt það flottasta og nýjasta. Hafi fólk ekki efni á hlutunum þá eru tekin lán. Sitt sýnist þeim hins vegar um það hverjum þetta er að kenna. Reyndar eru þau flest á því að fjölmiðlar og bankar ýti undir neyslu. Einn nefndi sem dæmi að um leið og systir hans varð 18 ára, og þar með lögráða, fékk hún bréf frá banka þar sem henni var boðinn hagstæður yfirdráttur. Þau segja bankana láta lántökur hljóma auðveldar og spennandi. En hvað með sparnað, það að leggja fyrir? Ingólfur H. Ingólfsson, félagsfræðingur og fjármálaráðgjafi, spyr á móti hvar unga fólkið eigi að læra það því hvorki skólarnir né foreldrar kenni krökkunum að spara.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Sjá meira