Rafmagn fór eystra vegna ísingar 18. mars 2005 00:01
Rafmagnsstaurar tóku að brotna hér og þar á Austurlandi vegna mikillar ísingar undir morgun og fór rafmagn víða af í fjórðungnum í kjölfar þess. Bálhvasst var á landinu í gærkvöld og voru björgunarsveitir víða um land kallaðar út. Mikil ísing hlóðst á raflínur þannig að ummál þeirra margfaldaðist. Við það sliguðust þær og ýmist slóust saman eða slitnuðu. En þar sem þær héldu, sliguðu þær rafmagnsstaurana, sem brotnuðu undan farginu. Starfsmaður RARIK á Egilsstöðum sagðist á níunda tímanum í morgun ekki hafa við að taka við tilkynningum um rafmagnsleysi eða slitnar línur og brotna staura. Á Fljótsdalshéraði einu brotnuðu að minnsta kosti 15 rafmagnsstaurar en RARIK-mönnum hefur tekist að koma rafmagni aftur á á Egilsstöðum og Norðfirði, en rafmangslaust er enn á Vopnafirði og Djúpavogi og í Berufirði og á bæjum þar í kring og ef til villl víðar. Aðstæður til viðgerða voru afleitar í morgun, bálhvasst, ofankoma, hálka, blinda og ísing, en nú er veður farið að skána víðast hvar. Þó er enn illviðri á Fjaðrarheiði, Oddskarði og Vatnsskarði eystra, en þar á að fara að hægjast um í dag. Víða var bálhvasst á landinu í gærkvöldi og voru björgunarsveitir kallaðar út á nokkrum stöðum. Björgunarmenn hjálpuðu fólki í bíl á Fjarðarheiði og björgunarmenn voru kallaðir út á Hvolsvelli vegna gróðurhúss sem var að fjúka. Sömuleiðis á Kjalarnesi þar sem spýtnabrak fauk um og þakkantur á húsi var að rifna af. Loks voru björgunarmenn frá Flateyri og Hnífsdal kallaðir að bænum Sæbóli í Önundarfirði þar sem stór hluti af hlöðuþakinu fauk í heilu lagi yfir íbúðarhúsið og svo á haf út. Elísabet Pétursdóttir húsfreyja segir að það hafi verið mildi að aðeins tvær járnplötur hafi farið úr þakinu þegar það flaug yfir húsið og lenti hvorug þeirra í glugga á íbúðarhúsinu. Það var líka afleitt veður á mörgum fjallvegum í nótt , en engin lenti þó í vandræðum enda sárafáir á ferð.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira