Réttarhöld yfir Milosevic hafin 31. ágúst 2004 00:01
Ásakanir sem Slobodan Milosevic er borinn eru helberar lygar og málflutningur saksóknara við stríðsglæpadómstólinn í Haag er byggður á útúrsnúningi á mannkynssögunni. Þessu hélt Milosevic fram í morgun, þegar hann hóf málsvörn sína. Milosevic var þvermóðskufullur þegar hann birtist í rétti í Haag í morgun og hóf málsvörn sína, tveimur mánuðum síðar en til stóð. Upphaflega olli heilsubrestur því, að fresta varð málinu, en hann er sakaður um þjóðarmorð, glæpi gegn mannkyni og stríðsglæpi í Króatíu, Bosníu og Kósóvó. Á næstu vikum vill Milosevic kalla til 150 vitni, þeirra á meðal Tony Blair, Bill Clinton og Gerhard Schröder og hyggst Milosevic sýna fram á að ásakanir áhendur honum séu lygar og útúrsnúningur. Stríðin sem um ræðir hafi verið tilraunir Vesturlanda, NATO, albanskra eiturlyfjasmyglara í Kósóvó, íslamskra skæruliða og Vatíkansins til að skipta upp Júgóslavíu. Að auki segir Milosevic að stríðsglæpadómstóllinn í Haag sé andsnúinn honum persónulega og Serbum öllum. Eini tilgangur dómstólsins að mati Milosevic er sá, að breiða yfir stríðsglæpi NATO í Kósóvó, í stríði sem Bandaríkin og Bretland stóðu fyrir. Milosevic virtist rólegur og yfirvegaður í morgun þegar hann hóf málflutning sinn, en að hálfu réttarins verður áfram fylgst náið með heilsu Milosevic og kannað hvort að nauðsynlegt reynist að skipa honum verjanda, en Milosevic hefur krafist þess að fá að verja sig sjálfur.
Erlent Fréttir Mest lesið Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Vonda veðrið færist í borgina og á Suðurland Veður „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Innlent Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Erlent Fleiri fréttir Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Sjá meira