Austurbyggð vaknar 19. desember 2004 00:01
Það er til marks um uppganginn í Austurbyggð að framkvæmdir við nýja götu, Gilsholt, á Fáskrúðsfirði eru vel á veg komnar. Tólf íbúðir munu rísa við götuna, átta einbýli og tvö parhús. Grunnur fyrsta hússins hefur þegar verið tekinn og viðbúið er að önnur hús rísi skjótt, enda talsverð eftirspurn eftir lóðum í sveitarfélaginu. Nýbyggingar hafa verið fátíðar á Fáskrúðsfirði, eitt hús var byggt í fyrra en þá var áratugur liðinn frá því síðast var byggt. Steinþór Pétursson sveitarstjóri horfir björtum augum til framtíðar enda góðir tímar í vændum. "Það lítur allt vel út," segir hann og þakkar stöðuna væntanlegu álveri á Reyðarfirði og göngunum milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar. "Hér ríkir mikill spenningur vegna ganganna enda stytta þau vegalengdina milli fjarða umtalsvert." Verklok eru ráðgerð í september á næsta ári en þar sem framkvæmdir hafa gengið vel og eru á undan áætlun gæla menn við að hægt verði að hleypa um þau umferð í sumarbyrjun. "Það er töluvert um að menn fari á milli staða til að sækja vinnu og þetta mun vitaskuld nýtast þeim vel." Í dag eru liðlega 50 kílómetrar á milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar en með göngunum styttist leiðin í átján kílómetra. Hins vegar eru 26 kílómetrar á milli þéttbýliskjarnanna tveggja í Austurbyggð, Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar, og ekki á dagskrá að tengja þá með göngum. Samtals búa um 860 í sveitarfélaginu, 600 á Fáskrúðsfirði og 260 á Stöðvarfirði. Í dag liggur þjóðvegur eitt eftir sunnanverðum Austfjörðum, upp Breiðdalsheiði og þaðan inn á Hérað. Sveitarstjórn Austurbyggðar vill að fjarðaleiðin, í gegnum göngin og upp Fagradalinn, verði þjóðvegur eitt og óskaði eftir því formlega við samgönguráðuneytið. Steinþór segir að erindinu hafi verið tekið kurteisislega. "Það var þakkað fyrir erindið og sagt að málið yrði skoðað svo við bíðum bara og sjáum." Eins og gengur hefur þessi málaleitan hlotið misjafnar undirtektir eystra enda margir sem vilja halda í núverandi skipulag. Í haust bárust fréttir af því að kaupmaðurinn á Stöðvarfirði hefði brugðið búi og illa horfði með aðdrætti heimamanna. Hægt er að fá helstu nauðsynjar í sjoppu í bænum en íbúar þurfa að leita lengra eftir öðru. Á Fáskrúðsfirði er ágæt verslun, að sögn sveitarstjórans. Atvinnulíf í Austurbyggð er að mestu bundið við sjávarútveg. Loðnuvinnslan er stærsti vinnuveitandinn á Fáskrúðsfirði og Samherji á Stöðvarfirði. Steinþór sér ekki fram á að það muni breytast á næstunni en bendir þó á að rekstur lítilla fyrirtækja og iðnfyrirtækja í minni kantinum kunni að vera hagstæður. "Hér er mjög góð hafnaraðstaða og kjörland fyrir hafnsækna iðnstarfsemi," segir Steinþór Pétursson, sveitarstjóri Austurbyggðar, sem hefur búið a Fáskrúðsfirði í tíu ár en er Eskfirðingur að upplagi.
Fréttir Innlent Mest lesið „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Jói Fel málar með puttunum Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Innlent Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Fleiri fréttir Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Sjá meira