Fjölmenni á slóð lykilsins 10. september 2004 00:01
Spennusagan Da Vinci lykillinn selst ekki bara eins og heitar lummur heldur hafa margir lesendur hrifist svo mjög að þeir leggja á sig löng ferðalög til að sjá staðina sem koma við sögu í bókinni. Nú er svo komið að nokkur fyrirtæki bjóða upp á skipulagðar ferðir fyrir þá sem vilja komast að því hversu mikið í bókinni á við rök að styðjast. Sagan segir að áður en Da Vinci lykillinn eftir Dan Brown varð að metsölubók hafi bandarískur ferðalangur í Saint-Sulpice kirkjunni í París varað prestinn þar við því að bókin ætti eftir að valda honum miklum vanda. Það virðist hafa gengið eftir því fjöldi gesta leggur leið sína í kirkjuna til að mynda broddsúlu sem kemur við sögu í einu af upphafsatriðum bókarinnar. Fyrir Paul Roumanet, prest kirkjunnar, hefur þessi nýfengna frægð síður en svo reynst blessun. Hann fékk á endanum leið á því að svara spurningum lesenda út frá bókinni og setti upp skilti sem hefst á orðunum: "Þvert á þær stórfurðulegu staðhæfingar sem birtast í nýlegri metsölubók..." Aðrir hafa fagnað þessum mikla áhuga lesenda, einkum og sér í lagi fyrirtæki í ferðaþjónustu sem hafa tekið vel við sér, hvort tveggja í Frakklandi og Bretlandi. Í það minnsta þrjú fyrirtæki bjóða upp á sérstakar Da Vinci lykils ferðir í París, önnur fyrirtæki bjóða upp á sams konar ferðir í London og víðar á Bretlandi. Mjög misjafnt er hvernig ferðaþjónusturnar taka á bókinni. "Ráðgátur höfða alltaf til fólks," sagði Jason Doll-Steinberg hjá British Tours sem bjóða hvort tveggja upp á Da Vinci ferðir og ferðir til Stonehenge. Meðal þeirra sem hafa farið í Da Vinci ferðina eru Madonna og eiginmaður hennar, leikstjórinn Guy Ritchie. Jean-Manuel Traimond, hjá Escape í Frakklandi, er ekki jafn sáttur og kallar ferð sína "Da Vinci svindls ferðina". "Brown býr til brýr sem eru ekki til, setur tré þar sem engin eru," segir hann og bætir við. "Hann heldur því fram að Godefroy de Bouillon hafi verið konungur Frakklands, sem hann var aldrei."
Erlent Fréttir Mest lesið Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Erlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Innlent Fleiri fréttir Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Sjá meira