Ellefta stærsta fiskveiðiþjóðin 14. desember 2004 00:01
Íslendingar voru ellefta stærsta fiskveiðiþjóðin í heiminum árið 2002 og önnur stærsta á Norðaustur-Atlantshafi, samkvæmt samantekt Hagstofu Íslands um heimsaflann 2002. Í samantektinni kemur fram að heimsaflinn árið 2002 hafi vaxið lítilsháttar á milli áranna 2001 og 2002 og var rúmlega 93 milljónir tonna. Alls reyndist fiskafli tuttugu og einnar þjóðar meiri en ein milljón tonna á árinu 2002 og nemur samanlagður afli þesara ríkja ríflega 72 milljónum tonna, sem eru rúmlega 77 prósent heimsaflans. Kínverjar voru stærsta fiskveiðiþjóðin á árinu, með 16,6 milljónir tonna, en næstir þeim komu Perúmenn með tæplega 9 milljónir tonna. Þar á eftir komu þjóðir á borð við Bandaríkjamenn, Japana, Indverja, Rússa og Norðmenn sem vermdu tíunda sætið með tæplega þrjár milljónir tonna af heimsaflanum. Íslendingar voru í ellefta sæti heimslistans með 2,1 milljón tonna, eða 2,3 prósent heimsaflans, og þýðir það að þjóðin færist upp um eitt sæti frá því árið 2001. Ísland var í öðru sæti veiðiþjóða á Norðaustur-Atlantshafi og í ellefta sæti veiðiþjóða á Norðvestur-Atlantshafi. Danir voru í sextánda sæti og á eftir þeim komu meðal annars Mjanmar, Malasía, Tævan og Kanada. Mest var veitt í Kyrrahafinu árið 2002 og stærsta einstaka fisktegundin var perúansjósa en alls veiddust 9,7 milljónir tonna af tegundinni, eða 10,4 prósent heimsaflans. Af Alaska-ufsa veiddust 2,7 milljónir tonna og af randatúnfiski veiddust tvær milljónir tonna. Aðrar fisktegundir náðu ekki tveggja milljóna tonna markinu. Af þeim fisktegundum sem Íslendingar veiða þá var heimsafli loðnu tæplega tvær milljónir tonna, af Atlantshafssíld veiddust 1,9 milljónir og af þorski veiddust 890 þúsund tonn.
Fréttir Innlent Mest lesið „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Erlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Veður Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Greint frá því að minkum hafi verið sleppt út í Mosfellsdal Innlent Mjólkurhvít mengun í Sauðá Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fleiri fréttir Greint frá því að minkum hafi verið sleppt út í Mosfellsdal „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Sjá meira