Heilu þorpin með íbúum horfin 27. desember 2004 00:01 "
Heilu þorpin á austurströnd Sri Lanka eru horfin. Fólkið líka," segir Helen Ólafsdóttir sem stödd er í höfuðborginni Colombo. Hún hóf störf á Sri Lanka hjá norrænu friðargæslunni á vegum utanríkisráðuneytisins 12. desember. Dánartölur á Indlandi eru komnar yfir ellefu þúsund og fimm hundruð manns, samkvæmt fréttamiðlinum AP. Helen segir þær tölur enn geta hækkað. Landið sé erfitt yfirferðar þar sem mikil rigningarflóð hafa verið fyrir flóðbylgjuna. Erfitt sé því að ná til fólksins sem búi á svæðinu. Nokkrar vikur geti tekið að meta manntjón hamfaranna: "Núna er kapphlaupið hjá alþjóðlegum hjálparstofnunum, hernum, lögreglu og öllum þeim sem koma að málum að fjarlægja lík og skipuleggja flóttamannabúðir svo hægt sé að koma í veg fyrir farsóttir. Það er svo erfitt því stór hluti af landinu er mjög erfiður yfirferðar og skelfilegt að ná til fólksins." Auk rigningarflóðanna segir Helen að flóðbylgjan hafi fært jarðsprengjubelti sem grafið var í jörð á átakasvæðum Tamil Tígra og stjórnvalda úr stað. Enginn viti nákvæmlega hvar sprengjurnar séu niðurkomnar. Skrifstofur norrænu friðargæslunnar sem Helen starfar hjá eru á austurströnd Sri Lanka. Helen segir ástandið þar verst. Gæslan starfi við friðareftirlit og skrái brot á vopnahléssamningi sem Tamíl Tígrum og stjórnvöldum hafi verið sett. Helen segir fylkingarnar tvær vinna vel saman. Það sé ljósið í myrkri hamfaranna. Norræna friðargæslan hafi milligöngu um samskiptin. Auk Helenar starfa Björn Rúriksson og Magnús Norðdahl með friðargæslunni á Sri Lanka. Þeir eru í Ampara-héraði þar sem ástandið er verst: "Ég veit að strákarnir voru að hjálpa á ökrunum og að hjálpa fólki að komast á spítala."
Asía - hamfarir Fréttir Innlent Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent „Fólk er ekki heimskt“ Innlent Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Erlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Sjá meira