Innlent

Völvan sannspá um kosningarnar

Engin heimspekimiðstöð var reist hér á landi á árinu og ekki var heldur sett á fót lyfjaverksmiðja á Norðurlandi, hvað þá nýtt íslenskt dagblað. Öllu þessu og miklu fleiru spáði völva Vikunnar fyrir ári. Hún reyndist hins vegar sannspá um forsetakosningarnar og nýju húsnæðislánin. Við skulum fyrst fara á handahlaupum yfir það sem ræst hefur í völvuspá Vikunnar frá í fyrra. Völvan sá fyrir sér að farnar yrðu tvær leiðir í húsnæðismálum, annars vegar 90 prósenta lánin og hins vegar annars konar lán með breyttum forsendum. Þá sagði hún að mikil umræða yrði um vaxtalækkun og að fólkið í landinu myndi gera kröfu um lækkun vaxta. Völvan spáði einnig réttilega að sviptingar yrðu í þinginu í lok apríl en þá var fjölmiðlafrumvarpið kynnt, sællar minningar. Völvan sá að Ólafur Ragnar yrði endurkjörinn forseti. Það er kannski ekki mikið afrek en hún sá þó fyrir að mótframbjóðendur yrðu tveir. Völvan sá eldgos fyrir og jarðskjálftakippi við Grímsey. Þá spáði völvan réttilega fyrir um breytingar í stjórnunarstöðum á Stöð 2 og hún sagði að Svanhildur Hólm myndi róa á ný mið. Völvan spáði því einnig að ungu strákarnir í Sjálfstæðisflokknum myndu ekki gera stóra hluti á árinu og hún sagði að ríkið myndi hvorki selja Ríkisútvarpið né Landsímann. Hún sá hins vegar ekki fyrir að ríkið myndi eignast aðra sjónvarpsstöð á árinu sem er að líða. En völvunni skjátlaðist um margt. Engin alþjóðleg miðstöð á sviði heimspeki hefur verið reist hér eins og spáð var, né heldur var upplýsingaráðuneytið stofnað eða lyfjaverksmiðja reist á Norðurlandi. Þá fékk Spaugstofan ekki tækifæri til að slá í gegn í Bandaríkjunum og Sirrý og Sveppi reyndu ekki að slá í gegn í útlöndum. Ekkert fréttablað með pólitísku ívafi var stofnað í fyrra og Osama bin Laden fannst ekki í Suður-Ameríku þó svo að völvan hafi vitað af honum á þeim slóðum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×