Innlent

140 heimilisofbeldismál á ári

Um 140 skýrt skilgrein heimilisofbeldismál eru greind á slysa- og bráðasviði Landspítala háskólasjúkrahúss á hverju ári, að sögn Margrétar Tómasdóttur sviðsstjóra þar. Nú stendur yfir tilraun með bráðamótöku fyrir þolendur heimilisofbeldis á spítalanum. Dómsmálaráðuneytið skuldbatt sig síðastliðið vor til að setja tvær milljónir króna í tilraunina sem standa á í tvö ár. Á móttökunni eiga fórnarlömb heimilisofbeldis að fá sérstaka aðhlynningu, auk þess sem þeim verði boðin sérhæfð lögfræðiaðstoð. "Við höfum bent á að laga þurfi lagaumhverfið sem þessi brot varða til þess að konur sæki í þessa þjónustu," sagði Margrét, spurð um reynsluna af þessari tilraun. "Þessi móttaka er ekki orðin formlega til ennþá, en við höfum verið að þjálfa fólkið okkar í því að finna þessa einstaklinga og fá þá til þess að segja frá. Þeir koma oft undir öðrum formerkjum inn til okkar. Þessi mál verður að vinna hægt og örugglega." Margrét sagði, að ekki hefði fengist fjármagn til að reka móttöku umfram þá sem væri á slysa- og bráðasviði LSH nú. Milljónirnar tvær væru hins vegar eyrnamerktar ókeypis lögfræðiþjónustu og hefði verið varið til hennar. Þetta mál á sér áralangan aðdraganda. Það var árið 1997 sem Sólveig Pétursdóttir skipaði nefnd sem í sátu fulltrúar ráðuneyta dóms,- félagsmála,- heilbrigðis,- og menntamála til að vinna að forvörnum, hjálparúrræðum, meðferðarúrræðum og breytingum á löggjöf til að sporna gegn heimilisofbeldi. Nefndin samþykkti síðan tilögu um að komið yrði á fót sérhæfðri móttöku fyrir þolendur heimilsiofbeldis, þar sem þeir sem fyrir ofbeldi yrðu gætu leitað nauðsynlegrar aðstoðar og stuðnings, sér að kostnaðarlausu. Móttakan skyldi starfa náið með lögreglu sem skyld gegna lykilhlutverki við að kynna brotaþolum starfsemi hennar og fylgja þeim þangað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×