Fjölgar í fátækrahverfum 14. september 2004 00:01
Fjöldi þeirra sem búa í fátækrahverfum mun að líkindum tvöfaldast fram til ársins 2030, og segja sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna ástæðu til að óttast að fátækrahverfi verði gróðrarstía öfgamanna. Borgarbúum mun stórfjölga á næstu árum, samkvæmt því sem kemur fram í nýrri skýrslu sem Sameinuðu þjóðirnar hafa sent frá sér. Árið 2030 er talið að sextíu prósent íbúa jarðar muni búa í borgum, og er gert ráð fyrir að fjölgunin verði mest í fátækari borgumog fátækrahverfum. Alls er reiknað með að ein milljón manna flytji til borga á hverjum degi, flestir þeirra flytja til stórborga með meira en milljón íbúa og stór hluti þessara nýju borgarbúa verða innflytjendur. Höfundar skýrslunnar segja stórhættu á að þær aðstæður myndist, sem auki líkurnar á því að öfgamenn fái hljómgrun. Fátækt og vonleysi í fátækrahverfum og menningarleg gjá milli nýbúa og þeirra sem fyrir eru telja þeir kjörlendi öfgahópa, og segja nauðsynlegt að grípa þegar til aðgerða til að koma í veg fyrir ófremdarástand. Hnattvæðing er meðal þess sem veldur þessum vanda, samkvæmt skýrslunni. Þegar fyrirtæki segja upp starfsfólki í einu landi til að ráða fólk á lægri launum annars staðar getur það haft afar neikvæðar afleiðingar á báðum stöðum, þar sem þeir sem missa vinnuna standa eftir atvinnulausir eða taka oft vinnu sem býður ekki sömu tryggingar og laun. Í þeim löndum sem störfin verða til geta alþjóðafyrirtæki að sögn skýrsluhöfunda notað stærð sína og efnahagslegan mátt til að sniðganga þar ýmsar reglur um starfsöryggi eða umhverfisvernd. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir í formála skýrslunnar, að margar borgir glími við vaxandi fátækt, breikkandi gjá milli ríkra og fátækra, spillingu, glæpi og ofbeldi. Skýrsluhöfundar segja að með hliðsjón af þeim fjölda sem búa muni í borgum innan fárra ára, verði að takast á við þessi vandamál þegar í stað.
Erlent Fréttir Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Fleiri fréttir Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Sjá meira