Ívan sveigði af leið 11. september 2004 00:01
Fellibylurinn Ívan sveigði af leið á síðustu stundu og miðja hans fór því ekki beint yfir höfuðborg Jamaíka eins og spáð hafði verið. Þó létust að minnsta kosti tveir. Hættan er ekki liðin hjá því Ívan heldur áfram för og næst verður Kúba fyrir barðinu á honum. Fellibylurinn gekk yfir Jamaíka í nótt og í morgun. Það varð ekki ljóst fyrr en á síðustu stundu að, sem betur fer, hafði Ívan sveigt aðeins í vestur svo miðja hans fór ekki beint yfir höfuðborgina og landið allt eins og áætlað var en lenti á sjónum. Þrátt fyrir það var fárviðri á Jamaíka; vindur fór upp í 65 metra á sekúndu, tré og ljósastaurar rifnuðu upp með rótum, flóðbylgjur gengu á land, vatn flæddi um götur og rafmagnið fór af allri eyjunni. Þjófar og ræningjar notuðu tækifærið sem gafst þegar fólk flúði heimili sín og létu greipar sópa í miðborg höfuðborgarinnar Kingston. Tíu ára stúlka drukknaði í sjónum og kona lést þegar tré féll á heimili hennar. Jamaíkabúar eru enn varaðir við því að vera á ferli því áfram verður hætta á aurskriðum og vatnsflóðum. Hingað til hefur smáeyjan Grenada orðið verst úti í fellibylnum. Þar létust 37 manns og Alþjóða Rauði krossinn áætlar að um tveir þriðju hlutar íbúanna séu heimilislausir. Fellibylurinn heldur nú áfram og er líklegt að hann gangi á land á Kúbu í nótt. Í hvert sinn sem hann fer yfir sjó þá sækir hann í sig veðrið og vindhraðinn eykst. Búist var við að á eftir Kúbu myndi syðsti hluti Flórída verða fyrir barðinu á Ívan en sökum þess að hann hefur aðeins breytt um stefnu þykir nú allt eins líklegt að Ívan endi sína lífdaga úti á Mexíkóflóa og láti Flórídabúa í friði.
Erlent Fréttir Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Borgarbúar fá annan góðviðrisdag Veður Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Níu gistu fangageymslur í nótt Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Fleiri fréttir Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Sjá meira