Breytingar á félagslega kerfinu 30. ágúst 2004 00:01
Umfangsmestu breytingar á félagslega kerfi Þýskalands standa fyrir dyrum. Hnattvæðing og aukin samkeppni knýja á um grundvallarbreytingar, sem almenningur virðist staðráðinn í að láta ekki yfir sig ganga. Tillögur Harz-nefndarinnar svokölluðu hljóma eins og skrifræðismeistaraverk sem dugir til að svæfa áköfustu embættismenn á mettíma. En kjarninn snertir nánast alla Þjóðverja og það umhverfi sem þeir töldu sig eiga rétt á eftir erfið ár uppbyggingar að lokinni seinni heimsstyrjöldinni. Velferðarkerfi, menntun og 35 stunda vinnuvika eru hins vegar lúxus sem þýska ríkið virðist ekki lengur hafa efni á. Atvinnulausir, sem eru fjöldamargir í Þýskalandi, einkum í austurhlutanum, þurfa að ganga í gegnum nýtt kerfi sem á að hjálpa þeim að finna vinnu, hljóta þjálfun og lifa af um stund, en svo er hjálpinni lokið. Þetta eru án efa róttækustu aðgerðir sem Schröder kanslari hefur staðið fyrir. Helsti mótherji hans, fyrrverandi keppinautur innan Jafnaðarmannaflokksins og ráðherra í fyrstu stjórn Schröder, Oscar Lafontaine, gengur nú fram fyrir skjöldu til að mótmæla og skipuleggja aðgerðir. Tugir þúsunda þramma nú vikulega í mánudagsmótmælum um allt Þýskaland - einkum í Austur-Þýskalandi gamla. Þar eru mánudagsmótmæli þekkt fyrirbæri, og þau oft talin upphaf endaloka kommúnistastjórarinnar þar eystra fyrir hart nær fimmtán árum. Austanmegin gömlu landamæranna er atvinnuleysi enn mikið og ástandið á köflum afar slæmt - og landamærin eru enn til í höfðum margs borgarans sem sér alþýðulýðveldið í dýrðarljóma þar sem ríkið sá um alla. Schröder kanslari hefur ítrekað óskað eftir því að mótmælendur komi til viðræðna, enda séu umbætur óumflýjanlegar. Bæði er uppbygging Austur-Þýskalands ríkinu dýr, atvinnuleysistryggingakerfi og hlutar félagslega kerfisisins þykja bæði dýr og óskilvirk og loks þykir Þýskaland ekki lengur samkeppnisfært á tímum hnattvæðingar. Eins og víðar eru störf í vaxandi mæli flutt út þaðan til landa þar sem vinnuafl er ódýrara. Enn sem komið er hafa mótmælendur frekar viljað mótmæla en setjast að samningaborði, og með viðbót Lafontaines í dag ýja sumir stjórnmálaskýrendur að því, að hafin sé hrein og bein pólitísk barátta um völdin í landinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Erlent Fleiri fréttir Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Sjá meira