Sprengiefni með handfarangri 30. ágúst 2004 00:01
Ekki er leitað sérstaklega að sprengiefni í handfarangri flugfarþega í Bandaríkjunum. Bandaríska dagblaðið USA Today greindi frá þessu í gær í kjölfar þess að sprengiefni hefði fundist í handfarangri tveggja kvenna sem talið er að hafi grandað tveimur rússneskum farþegaflugvélum í síðustu viku. Douglas Laird, sérfræðingur í öryggismálum fyrir bandaríska flugfélagið Northwestern, segir að það sé gat í öryggiskerfi flestra bandarískra flugvalla. Leitað sé að sprengiefni í venjulegum farangri en handfarangur sé bara gegnumlýstur og það sé ekki nóg. Ekki sé víst að sprengiefni sjáist í gegnumlýsingum. Þá segir hann að farþegar geti mögulega komist í gegnum öryggiskerfi flugvallanna með sprengiefni inni á sér því málmleitarhlið sem farþegar þurfi að fara í gegnum greini ekki sprengiefni. Laird segir brýnt að stjórnvöld bæti úr þessu sem fyrst. "Við megum ekki vera of örugg um að hér séu öryggismál í góðum lagi eftir endurskoðun þeirra mála í kjölfar 11. september," segir Laird. Sérstakur búnaður sem greinir lykt af sprengiefni hefur verið tekin í gagnið á fimm flugvöllum í Bandaríkjunum. Flugvellirnir eru hins vegar ekki þeir stærstu því búnaðurinn er í Tampa, San Diego, Providence, Rochester og Biloxi. Stjórnvöld segja að enn sé verið að kanna hvort búnaðurinn virki sem skyldi.
Erlent Fréttir Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Fleiri fréttir Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Sjá meira