Lífið

Landsins snjallasti versti sjónvarpsþátturinn

Sjónvarpsþátturinn "Landsins snjallasti" sem sýndur var á Skjá einum, er versti sjónvarpsþátturinn í ár, að mati hlustenda útvarpsstöðvarinnar Skonnrokk FM 90,9. Stöðin stóð fyrir vali á því versta sem finna má í íslenskri afþreyingu, "Gullkindinni 2004". Atkvæði hlustenda Skonrokks vogu 30% á móti 70% vægi atkvæða akademíu Gullkindarinnar. Eini fulltrúi akademíunnar sem gefið hefur sig upp er Sigurjón Kjartansson, dagskrárstjóri Skonnrokks. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld. Alls voru verðlaun veitt í tíu flokkum. Vinningshafar Gullkindarinnar 2004:Versti Sjónvarpsþáttur:Landsins snjallasti (Skjár einn)Versti sjónvarpsmaðurinn:Simmi og Jói (Idol, Auglýsingahlé, Stöð 2)Versta bíómyndin:Opinberun HannesarVersta Sjónvarpsauglýsingin:Landsbankinn – 70 prósent launa þinna.Versta bókin:Pikköpplínur með Kalla LúVersta lagið:Sólstrandargæi – Papar og FM957 all starsVersta platan:Kalli Bjarni – Kalli BjarniStjörnuhrap ársins:Kalli BjarniSvartasta vonin, líklegastur til að gera lélegt á næsta ári:Friðrik Þór FriðrikssonHeiðurskindin:Egill Eðvarðsson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.