Enn óvissa um 28 Íslendinga 27. desember 2004 00:01
Tuttugu og átta Íslendingar hafa ekki látið vita af sér eftir jarðskjálftann í Suðaustur-Asíu. Langflestir þeirra sem er saknað eru á ferð í Taílandi. Fimmtán til tuttugu eru taldir vera á hættusvæði. Staðfest er að tuttugu og þrír ferðamenn frá Norðurlöndunum hafi látið lífið. Íslensk yfirvöld hafa unnið að því í allan dag í samstarf við danska utanríkisráðuneytið að hafa uppi á þeim Íslendingum sem saknað er. Haft hefur verið samband við alla íslenska ræðismenn á hamfarasvæðunum og þeir beðnir að aðstoða eftir fremsta megni Engar skipulagðar ferðir voru á vegum íslenskra ferðaskrifstofa til Taílands um hátíðarnar en ferðalangarnir hafa því farið með erlendum ferðaskrifstofum eða flogið og ferðast um á eigin vegum. Alls voru eitthundrað og tuttugu Íslendingar staddir í námunda við hamfarasvæðið og sumir þeirra voru mjög hætt komnir. Um hádegi hafði ekki náðst samband við um fjörutíu þeirra, þar af voru flestir í Taílandi. Eftir því sem leið á daginn fækkaði á þeim lista en jafnframt komu fram ný nöfn fólks sem var á ferðalagi á þessum slóðum. Um klukkan sjö í kvöld var tuttugu og átta saknað. Pétur Ásgeirsson, skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu, segir að frá því í morgun hafi fengist upplýsingar um marga sem óvissa var um í gærkvöldi en á sama tíma hafi bæst við ný nöfn. Erfitt er að segja til um hversu margir eru á hættusvæði en þeir gætu verið á bilinu 15-20 að sögn Péturs. Hann segir engin áform uppi um að greiða fyrir brottflutningi Íslendinganna frá hamfarasvæðinu, enda engar vísbendingar borist um að þörf sé á því. Hrafn Thoroddsen, söngvari og gítarleikari í hljómsveitinni Ensími, var staddur á strönd í Suður-Taílandi ásamt unnustu sinni þegar flóðbygjan reið yfir. Þau sáu allt í einu gríðarstóran „vegg“ af sjó koma æðandi að ströndinni og í kjölfarið hafi orðið uppi fótur og fit á svæðinu. Þau hlupu ásamt fjölda fólks upp á hæð sem er í grenndinni og þar með hafi þau verið úr allri hættu. Sögur hafi svo verið á reiki um að önnur bylgja væri væntanleg og segir Hrafn þessa óvissu hafa verið það versta sem hann upplifði í hamförunum. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sendi í dag samúðarkveðjur til stjórnvalda þeirra ríkja sem verst urðu úti vegna náttúruhamfaranna. Hann segir óvenjulegt við atburðinn hversu margir Íslendingar séu á svæðinu en utanríkisráðuneytið hafi unnið gott starf við að hafa uppi á þeim. Íslensk stjórnvöld ákváðu nú síðdegis að veita fimm milljónum til mannúðar og neyðaraðstoðar á þeim svæðum sem verst urðu úti. Rauði krossinn hefur milligöngu um að koma fénu í réttar hendur. Rauði kross verður jafnframt með fund klukkan 20.30 í kvöld fyrir þá sem hafa áhyggjur af erlendum ríkisborgurum á flóðasvæðunum í Asíu. Á fundinum verður sagt frá náttúruhamförunum í Asíu og fólki sem ekki hefur tekist að hafa upp á ástvinum sínum verður gefinn kostur á að skrá nöfn þeirra hjá leitarþjónustu Rauða krossins. Fundurinn fer fram í húsakynnum Reykjavíkurdeildar Rauða krossins við Hlemm að Laugavegi 120. Túlkað verður á taílensku og ensku.
Asía - hamfarir Fréttir Innlent Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira