Þurfti að þrábiðja um hjartaaðgerð 27. desember 2004 00:01
Það var aðeins fyrir þrábeiðni ættingja sem karlmaður á áttræðisaldri var sendur í bráðaðgerð á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi vegna hjartveiki. Maðurinn var skráður á forgangslista fyrir hjartaþræðingu af hjartalækni eftir skoðun þann 13. desember. Sjúklingar á þeim lista eiga ekki að þurfa að bíða lengur en tvær til þrjár vikur eftir aðgerð. Hann fékk þau svör á Landspítalanum að það væri ekki hægt að skera hann upp fyrr en í janúar vegna fjárskorts og lokana á spítalanum. Á meðan var honum gert að taka sprengitöflur oft á dag til að halda veikindunum í skefjum. Ættingjar mannsins óttuðust um heilsu hans, enda var hann illa haldinn, gat varla komist upp stiga heima hjá sér og lá að mestu fyrir. Sonur hans sætti sig ekki við biðina og hafði samband við starfsfólk hjartadeildar. Þar var honum sagt að snúa sér til Tryggingastofnunar ríkisins en þaðan var honum vísað á embætti Landlæknis. Aðstoðar Landlæknir sagði þetta ekki vera mál er varðaði embættið og sagði það á ábyrgð spítalans. Því næst hringdi sonur mannsins í fjárreiðudeild Landspítala-Háskólasjúkrhúss og spurðist fyrir um hvort ekki væri til fé fyrir aðgerðinni. Þar varð fátt um svör en að lokum fékk hann farsímanúmer hjá starfsmanni deildarinnar sem greiddi úr málinu og boðaði manninn í aðgerð daginn eftir, þann 23. desember. Aðgerðin heppnaðist vel og hann var útskrifaður samdægurs. Gestur Þorgeirsson, yfirlæknir á hjartadeild Landspítala-Háskólasjúkrahúsi, segist ekki þekkja þetta einstaka mál og vilji því ekki tjá sig um það. Því sé hins vegar ekki að neita að fjármagn til reksturs deildarinnar sé takmarkað og gera mætti betur í rekstrinum með meira fé og fleira starfsfólki. Almennar sparnaðaraðgerðir séu í gangi og deildir spítalans séu reknar á of litlu fjármagni. Hann segir biðlista eftir hjartaþræðingum hafa lengst vegna þess að það hafi dregið úr starfsemi hjartadeildarinnar í sumar. Ekki hafi tekist að vinna upp biðlista síðan þá og því þurfi að forgangsraða eftir ástandi sjúklinga.
Fréttir Innlent Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent „Fólk er ekki heimskt“ Innlent Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Erlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Breiðholti Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Sjá meira