Ólæti 5. árið í röð 26. desember 2004 00:01
Ólæti brutust út í Grindavík í nótt þegar allsgáðir fullorðnir karlmenn reyndu að kveikja í áramótabrennu Grindvíkinga. Þetta eru fimmtu jólin í röð sem skrílslæti brjótast út í bænum og vegna reynslu fyrri jóla var lögregla með viðbúnað í bænum í gærkvöld. Reynsla fyrri jóla var að skríllinn myndi safnast saman um miðnætti og kom það á daginn. Samkvæmt upplýsingum lögreglu í Keflavík reyndi hópur fólks fyrst að stafla upp brennu við Saltfisksetrið um miðnætti. Lögregla stöðvaði það og flutti eldsmatinn á brott. Fólkið hélt þá að áramótabrennunni við Litluvör og kveikti í henni. Slökkviliðinu tókst ekki að slökkva eldinn og brann kösturinn upp að mestu leyti. Þá var kveikt í lítilli brennu við Sólarvé og segir lögregla að þar hafi á annað hundrað manns safnast saman. Flest var fólkið á milli tvítugs og þrítugs og segir lögregla það athyglivert hversu margir fullorðnir karlmenn hafi staðið að þessum spellvirkjum og að margir þeirra hafi ekki einu sinni verið undir áhrifum áfengis. Þegar slökkvilið gerði sig líklegt til slökkva eldinn mætti það nokkurri mótspyrnu og þurfti lögregla að skerast í leikinn. Tveir voru handteknir en þeim sleppt síðar um nóttina. Það var síðan versnandi veðri að þakka að skríllinn lét sig hverfa en aðgerðum lögreglu lauk um klukkan 2 í nótt, og var lögregla með 6 bíla á staðnum þegar mest lét. Vegna þessarar skemmdarfýsnar fullorðins fólks í Grindavík er óljóst hvort þar verði áramótabrenna á gamlárskvöld.
Fréttir Innlent Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira