Víða ófært vegna veðurs 24. desember 2004 00:01
Stórhríð geysar nú víða á Norður- og Norðausturlandi og er orðið ófært á þessum slóðum. Hátt í tíu manns í nokkrum bílum urðu að hafast við í stórhríð á Siglufjarðarvegi í alla nótt eftir að tvö snjóflóð féllu á veginn með stuttu millibili og ekki var hægt að snúa við vegna ófærðar. Vegagerðarmenn á snjóruðningstækjum og jeppum brutust til fólksins í morgun og komu fólkinu til síns heima undir hádegið. Að sögn Vegagerðarmanns, sem tók þátt í aðgerðinni, amaði ekkert að fólkinu, Það hafði kynnt bíla sína með reglulegu millibili í alla nótt en sumir voru farnir að sakna þess að fá ekki kaffisopa. Annars er það að frétta frá Vegagerðinni að Holtavörðuheiði er ófær og stórhríð geysar á Ströndum og í Húnavatnssýslum þannig að ekkert verður frekar reynt að ryðja vegi þar. Ófært er orðið um allan Skagafjörð og svipaða sögu er að segja um Eyjafjarðarsvæðið. Stórhríð er á Húsavík og við Mývatn og á Mývatnsöræfum, ófært í kringum Vopnafjörð og eitthvað niður á Firði fyrir austan. En víða á Austurlandi er þó enn þokkaleg færð og greiðfært er um sunnan- og vestanvert landið. Það er einnig fært um Vestfirði og þar var hæglætisveður í morgun. Annars spáir Veðurstofan versnandi veðri á þeim svæðum þar sem veður er vont nú þegar og beina lögregla og Vegagerð því til fólks að reyna að vera alls ekki á ferðinni. Fyrir utan vandræðin á Siglufjarðarvegi er ekki vitað til þess að fólk hafi lent í hrakningum og ekki hefur þurft að kalla björgunarsveitir út.
Fréttir Innlent Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Fleiri fréttir Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Sjá meira