Innlent

Framtíð Íbúðalánasjóðs félagsleg

Uppgreiðslan hjá Íbúðalánasjóði nemur um 70 milljörðum króna eða tæpum þriðjungi af lánum sjóðsins. Ef uppgreiðslan heldur áfram með sama takti og hingað til má búast við að helmingurinn hafi verið greiddur upp síðla árs 2005. Guðbjörg Anna Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá greiningu Íslandsbanka, telur að Íbúðalánasjóður muni í framtíðinni frekar sinna félagslegu hlutverki en að vera virkur í samkeppni á almennum lánamarkaði. Hann sinni þá lánveitingum til aðila sem bankarnir sinna ekki, til dæmis úti á landi sem og vegna félagslega kerfisins. Búist er við töluverðri umræðu og hræringum varðandi hlutverk Íbúðalánasjóðs á næstu mánuðum. "Mér þykir ekki ólíklegt að það verði á endanum þannig. Það er pólitísk ákvörðun hvort menn vilja hafa þennan sjóð inni á markaðnum eða ekki," segir hún. Uppgreiðslur hjá Íbúðalánasjóði eru mjög miklar og miklu meiri en var gengið út frá þegar farið var út í skipti á skuldabréfaútgáfu sjóðsins í sumar. Guðbjörg Anna áætlar að uppgreiðslan nemi nú þegar um 70 milljörðum króna, þar af eru 40 milljarðar sem sjóðurinn getur ekki mætt með aukaútdrætti húsbréfa á markaði. Ætla má að uppgreiðslur hafi numið 10-20 milljörðum á mánuði frá því bankarnir fóru að bjóða íbúðalán á sambærilegum kjörum og Íbúðalánasjóður. Hægi ekki á gæti stefnt í vandræði hjá sjóðnum. Takmarkaðar upplýsingar eru um það hvernig Íbúðalánasjóður hyggst mæta þessum uppgreiðslum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×