Úttekt á þjónustu við aldraða 17. desember 2004 00:01
Ríkisendurskoðun gerir nú úttekt á þjónustu við aldraða á stofnunum. Benedikt Davíðsson, formaður Landssambands eldri borgara, segir að stórar öldrunarstofnanir eigi að heyra sögunni til. Vistmennn þar hafi verið mjög óánægðir með tíð starfsmannaskipti og þjónustuna almennt. Athugun hófst í sumar að frumkvæði Ríkisendurskoðanda og eru niðurstöður væntanlegar í janúar eða febrúar. Skoðað verður hvaða þjónusta er veitt á þessum stofnunum og hvað hún kostar og gerður samanburður milli stofnana. Í úttekt sem gerð var af einkaaðilum fyrir forsvarsmenn virtrar öldrunarstofnunar í borginni sýndu niðurstöður mikla óánægju aldraðra og aðstandenda þeirra. Óánægjan var fyrst og fremst vegna tíðra starfsmannaskipta og fjölda erlendra starfsmanna sem olli því að fólki fannst erfitt að gera sig skiljanlegt. Benedikt segist vona að úttekt ríkisendurskoðunar verði tæki til að fara fram á úrbætur. Hann segir ekki nærri nógu vel búið að eldra fólki á elliheimilum, m.a. vegna fjárhagserfiðleika heimilanna. Benedikt segir mikilvægt að auðvelda öldruðu fólki að vera sem lengst á heimilum sínum. Auka þurfi heimaþjónustu og gera þeim fjárhagslega kleift að vera heima. Leggja beri áherslu á að byggja upp hjúkrunarheimili en tæplega tveggja ára bið sé fyrir fólk sem brýnt er að fari á hjúkrunarheimili. 25-30 prósent lifa það ekki að komast á slíkt heimili. Benedikt telur að dvalarheimilin eigi eftir að fjara út en að sjálfsögðu þurfi hjúkrunarheimilin að vera til staðar. Hann segir að fólkið á dvalarheimilunum eigi mikið frekar eiga að vera heima við en á slíkum stofnunum.
Fréttir Innlent Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Innlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Fleiri fréttir Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti Sjá meira