Dómi vísað frá 16. desember 2004 00:01
Hæstiréttur ákvað í dag að vísa frá héraðsdómi yfir pilti sem hafði verið sakfelldur fyrir líkamsárás. Ákæruvaldið lýsti efasemdum um réttmæti ákærumeðferðar málsins fyrir dómi og hjá lögreglu en vildi samt refsa piltinum. Pilturinn var upphaflega ákærður og dæmdur í héraði fyrir að hafa ráðist að sextán ára stúlku sem hann átti í sambandi við í tvö og hálft ár og meðal annars slegið hana nokkur hnefahögg. Það voru foreldrar stúlkunnar sem kærðu hann til lögreglu en hann var síðar ákærður fyrir líkamsárás og dæmdur í Héraðsdómi Austurlands í fangelsi í einn mánuð skilorðsbundið. Í greinargerð ríkissaksóknara, sem rak málið fyrir Hætarétti, segir að lögreglurannsóknin og dómsrannsóknin hafi verið miklu ítarlegri en sakargiftirinar hafi gefið tilefni til og farið langt út fyrir sakarefnið. Það virðist öðru fremur hafa haft þann tilgang að hafa áhrif á samband unglinganna. Hæstiréttur segir að málflutningur ákæruvaldsins hafi af öðrum þræði einkennst af því að lýsa efasemdum um réttmæti þess að gefa út ákæru í málinu og síðan að sakfella hann, jafnframt því að haldið er til streitu að hann beri að sakfella og refsa. Hæstiréttur segir að engin haldbær skýring hafi borist frá ákæruvaldinu um hverju þetta sætti. Meirihluti Hæstaréttar segir í greinargerð sinni að afstaða ríkissaksóknara sem rak málið fyrir hæstarétti og fulltrúa hans sem ákærði og rak málið fyrir Héraðsdómi, sé greinilega ekki sú sama. Á þeim grundvelli geti ríkissaksóknari breytt málflutningi ákærða til hagsbóta þótt engin ný gögn komi fram. Ákæruvaldinu hefði þó borið að krefjast sýknu þegar svo var komið því ekki sé því aðeins skylt að hlutast til um að sekur maður fái dóm heldur einnig að saklaus maður sé ekki dæmdur. Á þessum forsendum vísaði Hæstiréttur því málinu frá Héraðsdómi. Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari skilaði sératkvæði og taldi að sýkna bæri piltinn.
Fréttir Innlent Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Fleiri fréttir Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Sjá meira