Lífið

Loftbrú sem oft riðaði til falls

Núverandi og nokkrir fyrrverandi samgönguráðherrar veittu í gær viðtöku nýrri bók eftir Helgu Guðrúnu Johnson og Sigurveigu Jónsdóttur. Bókin heitir "Á flugi: Áfangar í sögu Flugleiða" og spannar að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa fyrirtækisins, 30 ára sögu Flugleiða og lýsir aðdragandanum að stofnun félagsins. "Til að samfagna okkur voru hér samgönguráðherrar þessa tímabils sem heimangengt áttu," sagði hann. Á þessu 30 ára tímabili sagðist Guðjón aðspurður telja að fyrirtækið hefði flutt nálægt 20 til 25 milljónir farþega, en ef marka má bókarkápu gekk það ekki áfallalaust fyrir sig. "Í bókinni er sagt frá því hvernig fyrirtækið varð til. Forsaga þess er á köflum lyginni líkust og í upphafi var ekki margt sem benti til að það ætti langa framtíð fyrir sér. Þessi mikilvæga loftbrú Íslendinga til annarra landa riðaði líka oft til falls," segir þar og bætt er við að yfir sögu fyrirtækisins ríki engin lognmolla. "Saga Flugleiða er spennusaga, saga um félag sem kom Íslandi í þjóðbraut á þotuöld."





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.