Lífið

Skothríð á rokktónleikum í Ohio

Fjórir menn létust á rokktónleikum á Alrosa Villa-klúbbnum í Columbus í Ohio í gærkvöldi. Sjónarvottar segja mann hafa rifið upp skammbyssu og byrjað að skjóta að meðlimum hljómsveitarinnar Damageplan, sem var nýstigin á svið. Staðfest hefur verið að einn hinna látnu var Dimebag Darrel, fyrrum gítarleikari Pantera. Áður en byssumaðurinn lét til skarar skríða segja sjónarvottar hann hafa öskrað að Dimebag Darrel áður en hann hóf að skjóta að honum. Þrír aðrir létust, þ.á.m. annar meðlimur Damageplan. Ekki hefur fengist staðfest hver sá var. Lögreglumaður, sem kom á vettvang, skaut byssumanninn til bana. Málið er í rannsókn.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.