Stefni biskupi vegna skipunar 7. desember 2004 00:01
Séra Sigríður Guðmarsdóttir hefur stefnt biskupi Íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni, og krefst þess að staðfest verði ólögmæti skipunar sr. Sigurðar Arnarsonar í embætti sendiráðsprests í Lundúnum haustið 2003 þar sem málefnaleg sjónarmið hafi ekki ráðið við mat á hæfni umsækjenda og menntun sín og starfsreynsla hafi verið meiri en þess er embættið hlaut. Brotið hafi verið gegn stjórnsýslulögum og lögum er um embættið gilda, auk þess sem jafnréttislög hafi verið brotin. Biskup Íslands, hr. Karl Sigurbjörnsson, setti tengdason sinn, sr. Sigurð Arnarson, til að gegna embætti sendiráðsprests í Lundúnum frá 1. október 2002 án þess að staðan væri auglýst. Í mars 2003 losnaði embættið. Hinn 5. júní birtist auglýsing á vef Biskupsstofu og þann dag sendi sr. Sigurður inn umsókn. Í byrjun júní tilnefndi biskupinn sr. Jón Bjarman sem formann hæfisnefndar og skyldi niðurstaða hennar vera bindandi, þvert á gildandi reglur. Daginn eftir birtist auglýsing um embættið í Lögbirtingablaðinu og sótti sr. Sigríður um embættið 12. júní. Í byrjun júlí skipaði biskup þrjá í hæfisnefnd og í framhaldinu vék hann sæti vegna vanhæfis. Biskup framlengdi setningu sr. Sigurðar í embætti prests í Lundúnum frá 1. júlí til 1. september 2003. Í september ákvað hann svo að Sigurður og sr. Jón A. Baldvinsson, vígslubiskup og áður prestur í Lundúnum, skyldu skiptast á að messa. Eftir mótmæli féllst hann á að stefnandi messaði einu sinni í Lundúnum. Hinn 18. nóvember voru umsækjendur boðaðir á fund hæfisnefndar og átti að taka ákvörðun nokkrum dögum síðar. Hinn 18. nóvember ákvað nefndin að mæla með sr. Sigurði í embættið. Stefnandi leitaði eftir rökstuðningi og kom í ljós að nefndin hafði klofnað. Jafnréttisnefnd þjóðkirkjunnar komst að þeirri niðurstöðu í vetur að jafnréttisáætlun kirkjunnar hefði verið hunsuð.
Fréttir Innlent Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Fleiri fréttir Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Sjá meira