Skilar 340 milljónum í ríkissjóð 30. nóvember 2004 00:01
Áfengisgjald á sterkt vín og tóbaksgjald ríkisins hefur hækkað um sjö prósent. Alþingi samþykkti hækkunina í fyrrakvöld og er talið að hún skili ríkissjóði 340 milljónum króna í tekjur á ársgrundvelli. Reiknað er með því að hækkun áfengisgjaldsins leiði til þess að smásöluverð á sterku víni hækki um 5,6 prósent. Þá er búist við því að hækkun tóbaksgjaldsins verði til þess að tóbak hækki um 3,7 prósent að jafnaði. Áfengisgjald léttra vína og bjórs verður óbreytt. Geir H. Haarde fjármálaráðherra lagði frumvarpið fram. Í því segir að hækkunin sé í samræmi við forsendur í tekjuáætlun fjárlagafrumvarpsins fyrir árið 2005. Áfengisgjald og tóbaksgjald hafi ekki hækkað síðan í lok nóvember árið 2002, þróun þeirra gjalda hafi ekki verið í samræmi við almennt verðlag og í raun hafi þau lækkað að raungildi. Tillaga um hækkun nú sé því í samræmi við þróun almenns verðlags á síðustu árum. Í frumvarpinu kemur fram að áætluð áhrif á vísitölu neysluverðs séu talin verða um 0,08 prósent. Fulltrúar Samfylkingarinnar í efnahags- og viðskiptanefnd gagnrýndu hækkunina. "Þrátt fyrir hástemmdar yfirlýsingar fjármálaráðherra um skattabyltingu er hér á ferðinni frumvarp sem felur í sér að bein útgjöld landsmanna í formi skatta aukast um 340 milljónir," segir í áliti þingmanna Samfylkingarinnar. "Að auki mun hækkunin sem frumvarpið felur í sér leiða til þess að neysluvísitalan hækkar um 0,08 prósent. Það þýðir að skuldaklyfjar landsmanna munu aukast um fast að einum milljarði króna." Samfylkingarþingmennirnir segja að með þessari hækkun og hækkunum á öðrum gjöldum á sköttum á þessu og síðasta ári sé ríkisstjórnin þegar búin að fjármagna skattalækkanir næsta árs. "Samtals má meta hækkanir síðasta árs og þessa á allt að 5 milljarða króna," segir í áliti þingmanna Samfylkingarinnar. "Það er hærri tala en sú skattalækkun sem ríkisstjórnin hefur samþykkt fyrir næsta ár."
Alþingi Fréttir Innlent Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Fleiri fréttir Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Sjá meira