Reynt að rangtúlka skattalækkanir 27. nóvember 2004 00:01
Geir H. Haarde fjármálaráðherra segir að reynt hafi verið að rangtúlka skattalækkanir ríkisstjórnarinnar, gera lítið úr þeim og þagga þær niður. Hann fullyrðir að skattalækkanirnar komi öllum til góða og að ráðstöfunartekjur heimilanna aukist að meðaltali um 4,5 prósent á ári. Geir H. Harde sagði á fundi með sjálfstæðismönnum á Grand Hóteli í dag að það væri í raun verið að bylta skattkerfinu. Um málið allt væri djúpstæður pólitískur ágreiningur. Ráða mætti af málfutningi stjórnarandstöðunnar að skattalækkanir væru gjöf til fólks, en í raun væri um að ræða arðgreiðslur af góðum árangri í efnahagsmálum og hagstjórn. Ráðherrann tók dæmi af eignaskattinum, en um helmingur þeirra sem greiða eignaskatt er kominn yfir sextugt. Öldruð manneskja sem hefði ekki nema milljón í árstekjur en ætti 20 milljóna króna eign hefði greitt 133 þúsund krónur í eignaskatt á ári. Hún þyrfti ekkert að greiða eftir að skattalækkunin yrði að veruleika. Geir sagði það bábylju að það væri einungis hátekjufólks sem greiddi eignaskatt. Það væri fyrst og fremst eldra fólk og ekki síður tekjulágt fólkm en hátekjumenn. Geir sagði að flestir fengu eitthvað út úr skattalækkununum og benti á að persónuafsláttur hækkaði um 8 prósent og skattleysismörk um 20 prósent. Þá væri verið að auka barnabætur um tæpan tvö og hálfan milljarð fram til 2007. Hann tók sem dæmi að hjón með tvö börn sem hefðu sex milljónir í árstekjur samanlagt, fengju fjögur hundruð og sjötíu þúsund krónur á ári út úr skattalækkununum. Að meðaltali segir Geir að ráðstöfunartekjur heimilanna aukist um 4,5 prósent. Þá fái barnafólk með millitekjur eða lágar tekjur hlutfallslega mest. Hann segir þetta klárlega koma öllum til góða og ekki sé um glapræði að ræða, heldur skynsamlega ákvörðun sem eigi ekki að þurfa að hafa neinar slæmar afleiðingar í för með sér.
Fréttir Innlent Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Fleiri fréttir Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Sjá meira