Breiddi yfir haus eftir íkveikju 17. nóvember 2004 00:01
Maður á fertugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa kveikt í fjölbýlishúsi í Breiðholti í Reykjavík í mars árið 2003. Maðurinn kveikti í geymslum í kjallara fjölbýlishúss sem hann bjó sjálfur í. Maðurinn sagði fyrir dómi að hann hefði verið drukkinn og farið að hugsa um seinagang hússtjórnarinnar sem ekki hefði komið því í verk að setja upp reykskynjara, þrátt fyrir íkveikjur í húsinu. "Kvaðst hann hafa ákveðið í ölæði að hrista upp í mönnum vegna þessa. Hann hafi þurft niður í geymslu að sækja kjúkling úr frystikistunni en þegar niður kom hafi hann séð þar á glámbekk brúsa með hættulegum efnum og það valdið honum enn meiri reiði," segir í dómnum. Maðurinn kveðst hafa fengið bakþanka eftir að hafa kveikt eldinn og ætlað að snúa við og slökkva eldinn en hann hafi ekki getað opnað læsingu vegna taugaspennings. Hann hafi því farið upp í íbúðina sína og breitt upp fyrir haus. Hann segist hafa orðið feginn þegar lögreglan handtók hann því honum hafi ekki orðið svefnsamt.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Rússar nærri stærstu landvinningunum í rúm tvö ár Erlent Starfsmenn meðferðarheimilis: Fíkniefni, öryggisbrestir og óvirkt eftirlit Innlent „Fullt af munum sem myndu ekki ganga kaupum og sölum á markaði“ Innlent Lykilorð Louvre einfaldlega Louvre Erlent Björgunarsveitarkona miður sín: Fékk ítrekaðar athugasemdir um húðlit Neyðarkallsins Innlent Þjófarnir lifðu eins og kóngar um stund Innlent Ugla Stefanía nýr sérfræðingur Reykjavíkurborgar Innlent Blóðugt barn eftir tilefnislausa árás í Kringlunni Innlent Féll í yfirlið í skrifstofu Trumps Erlent Grunaður barnaníðingur komi ekki lengur nálægt BHM Innlent Fleiri fréttir Kólnun á fasteignamarkaði: Færri skoða og lægra verð „Fullt af munum sem myndu ekki ganga kaupum og sölum á markaði“ Gagnrýnisverð hegðun Starfsmenn meðferðarheimilis: Fíkniefni, öryggisbrestir og óvirkt eftirlit Ugla Stefanía nýr sérfræðingur Reykjavíkurborgar Upplausn á meðferðarheimili og fleiri fölsuð lyf Björgunarsveitarkona miður sín: Fékk ítrekaðar athugasemdir um húðlit Neyðarkallsins Setja milljarða í raforkumál á Norðausturlandi Fjársvikamálið komið til Héraðssaksóknara Hrein mannvonska að námsmenn séu blórabögglar útlendingaóþols ESA segir Ísland þurfa að herða sig í loftslagsmarkmiðum sínum Stutt stopp Orbans á Íslandi Grunaður barnaníðingur komi ekki lengur nálægt BHM Skrifin séu ekki til komin vegna framboðs í borginni Þjófarnir lifðu eins og kóngar um stund Líf og Dóra í nýjum hlutverkum út kjörtímabilið Barni bjargað frá drukknun í Dalslaug „Ætlum ekki að hætta við allt sem er erfitt og gera allt fyrir alla“ Álag réttlæti ekki mistökin sem voru gerð Segja fátt rétt í fréttinni og heimildamanninn fyrrverandi eiginmann Gögnin frá ríkislögreglustjóra komin á borð ráðherra Lögreglustjóri svarar ráðherra og efnahagsmálin rædd á Alþingi Loka Breiðholtsbraut alla helgina Blóðugt barn eftir tilefnislausa árás í Kringlunni Staða sólar hafi mögulega truflað sýn ökumannsins sem lést Meirihluti stjórnmálasamtaka í vanskilum með ársreikning Leysa brátt frá skjóðunni um leiðtoga Miðflokksins í borginni og nafnaleikurinn hafinn Handteknir fyrir að hafa í hótunum við leigubílstjóra Starfsmaður ríkissaksóknara sagður hafa játað refsiverð brot Heiðra minningu Sigurðar Kristófers með Neyðarkallinum í ár Sjá meira