Páfagarður ósáttur við höfnun ESB 30. október 2004 00:01
Páfagarður sakar Evrópusambandið um hræsni og nornaveiðar, fyrir að hafna Rocco Buttiglione í embætti dóms- og öryggismálastjóra sambandsins. Rocco Buttiglione er heittrúaður kaþólikki og náinn persónulegur vinur Jóhannesar Páls páfa. Hann er Evrópumálaráðherra í ríkisstjórn Silvios Berlusconi, og það var forsætisráðherrann sem tilnefndi hann í embætti dóms- og öryggismálastjóra Evrópusambandsins. Þeir sem eru tilnefndir til hárra embætta hjá Evrópusambandinu mæta þar í áheyrn þar sem þeir lýsa hugmyndum sínum um viðkomandi embætti og svara spurningum um sjálfa sig. Buttiglione var spurður um afstöðu sína til samkynhneigðra. Hann sagði að samkvæmt sínum trúarbrögðum væri samkynhneigð synd. Hinsvegar virti hann fullkomlega réttindi samkynhneigðra til þess að lifa sínu lífi, og myndi í embætti sínu standa traustan vörð um mannréttindi þeirra. Það dugði þó ekki til. Buttiglione var úthrópaður hommahatari og þaðan af verra, og nokkuð ljóst að hin nýja stjórn Evrópusambandsins yrði ekki samþykkt, á Evrópuþinginu, með hann innanborðs. Buttiglione ákvað því, í dag, að draga sig í hlé. Páfagarður hefur brugðist hart við árásunum á Buttiglione, og sakar Evrópusambandið um hræsni og nornaveiðar.
Erlent Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira