Ástand Arafats enn alvarlegt 28. október 2004 00:01
Enn er óttast um heilsu Jassers Arafats, leiðtoga Palestínu, sem er ásamt fjölskyldu sinni, fjölda lækna og embættismanna á heimili sínu á Vesturbakkanum. Arafat fór þó til messu í morgun en var afar veikburða að sögn sjónarvotta. Í gær var óttast að Arafat, sem er 75 ára gamall, væri við dauðans dyr eftir að hann hné niður og missti meðvitund um tíma. Fréttir af heilsu Arafats í morgun eru nokkuð misvísandi og að því er fram kemur í fréttum BBC-fréttastofunnar segir ýmist að leiðtoginn aldni sé í lífshættu eða að ástand hans sé orðið stöðugt og hann sé úr lífshættu. Arafat yfirgaf þó heimili sitt í morgun til þess að halda til morgunbæna ásamt læknum og fylgdarliði. Að sögn sjónarvotta var Arafat afar laslegur og máttvana að sjá en fór þó með bænirnar sínar líkt og aðrir í messunni. Fljótlega verður væntanlega tekin ákvörðun um það hvort flytja þurfi Arafat frá höfuðstöðvum sínum í Gasa til frekari aðlynningar en eins og fram hefur komið lýsti Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, því yfir að Arafat gæti yfirgefið híbýli sín án þess að eiga á hættu að verða fyrir árás frá Ísraelsmönnum. Í gær voru þrír háttsettir embættismenn fengnir til þess að leysa Arafat af hólmi þar til hann nær sér af veikindunum. Færi svo að Arafat félli frá yrði Rouhi Fattouh, talsmaður þingsins í Palestínu, skipaður eftirmaður hans tímabundið. Innan sextíu daga yrði svo kosið um það hvort hann skyldi taka við stöðunni til langframa. Óttast er að óeirðir gætu brotist út ef Arafat félli frá, enda nýtur hann mikils persónufylgis og enginn með sambærilegt fylgi sjáanlegur til þess að taka við af honum.
Erlent Fréttir Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira