Lífið

Elvis launahæstur látinna

Konungur rokksins, Elvis Presley er launahæstur látinna listamanna. Þó að á þriðja áratug sé liðinn síðan konungurinn geispaði golunni, eru árlegar tekjur af vörum hans hvorki meira né minna en 40 milljónir bandaríkjadala. Það er dóttir Presleys, Lisa Marie, sem nýtur góðs af fjárhagslegu langlífi föður síns, enda á hún eignarhaldsfélagið Elvis Presley enterprises. Aðrir á topp tíu listanum yfir launaháa listamenn sem farnir eru yfir móðuna miklu eru til dæmis JRR Tolkien, höfundur hringadrottinssögu, bítlarnir John Lennon og George Harrison, leikararnir James Dean og Marilyn Monroe og söngvarinn Freddy Mercury.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.