Ísraelar leyfa flutning Arafats 26. október 2004 00:01
Heilsufar Jassers Arafats, leiðtoga Palestínumanna, hefur enn og aftur dregið athyglina að aðstæðum Arafats sem hefur setið í nokkurs konar sjálfsskipuðu stofufangelsi í hálft þriðja ár. Heilsufar Arafats hefur verið nokkuð til umræðu undanfarið en fyrir stuttu flugu læknar frá Túnis og Egyptalandi til Vesturbakans til að skoða hann þar sem hann lá mjög veikur með magaverk og ælupest. Sú tíðindi berast hins vegar nú að Ísraelar hafa gefið Yasser Arafat leyfi til að yfirgefa Vesturbakkann tímabundið til að gangast undir læknisaðgerð vegna þessara veikinda. Ísraelsmenn segja að leyfið hafi verið veitt eftir að ósk um það barst frá palestínskum embættismönnum en þeir neita hins vegar alfarið að hafa óskað eftir leyfinu. Samstarfsmenn Arafats segja að hann hafi gengist undir læknisskoðun í höfuðstöðvum sínum á Ramallah og í ljós hafi komið að hann væri ekki alvarlega veikur heldur hafi aðeins fengið flensu og sé nú að jafna sig. Hann þurfi ekki á sjúkrahús og muni því ekki þiggja boð Ísraelsmanna. Heilsa Arafats er sérstakt fréttaefni, umfram annarra leiðtoga, vegna þess að Arafat kemst ekki svo glatt til lækna eða á sjúkrahús þar sem hann hefur ekki fengið leyfi til að yfirgefa höfuðstöðvar sínar á Ramallah í tvö og hálft ár. Ísraelsmenn segja reyndar að Arafat sé frjálst að ferðast og helst vildu þeir koma honum úr landi. Stjórnvöld í Ísrael segja hins vegar að ef Arafat færi í burtu hvort sem er í opinbera heimsókn eða af heilsufarsástæðum myndu þeir ekki getað gefið vilyrði fyrir því að hann fengi að snúa aftur til Palestínu. Þess vegna situr Arafat sem fastast og neitar að leggjast inn á sjúkrahús.
Erlent Fréttir Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Sjá meira