Innlent

Vegagerðinni synjað um leyfi

Bæjarstjórn Ölfuss synjaði Vegagerðinni um framkvæmdaleyfi vegna nýs vegar um Svínahraun fyrir helgi. Synjunin gæti orðið til þess að vegabæturnar frestist um fjölda ára. Fyrirhugað er að stytta þjóðveginn um Svínahraun og taka af um leið tvær varasamar beygjur, annars vegar fyrir neðan Hveradalabrekkuna og hins vegar við gatnamót Þrengslavegar. Upphaflega stóð til að bjóða út verkið snemma á þessu ári og átti vegurinn að vera tilbúinn nú í haust. Þá var hugmyndin að gatnamótin til Þorlákshafnar yrðu ekki mislæg heldur hefðbundin. Ölfusingar hafa hins vegar ákaft þrýst á að þarna verði mislæg gatnamót. Til að höggva á hnútinn hugðist Vegagerðin síðar í þessum mánuði bjóða verkið út með báðum þessum valkostum til að fá samanburð á kostnaði. Bæjarstjórn Ölfuss hafnaði því hins vegar fyrir helgi að veita framkvæmdaleyfi á þeim grundvelli að báðir kostir kæmu til greina og hefur með samþykkt sinni í raun sett það skilyrði að þarna verði mislæg gatnamót. Hjá Vegagerðinni eru menn nú að skoða hvernig bregðast eigi við þessari óvæntu uppákomu. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 er meðal annars verið að skoða þann möguleika að kæra samþykkt bæjarstjórnarinnar til félagsmálaráðuneytis til að láta reyna á gildi hennar. Þá er frekari töf á útboði talin auka líkur á því að nýr vegur um Svínahraun lendi í hópi þeirra framkvæmda sem Vegagerðinni þarf að skera niður. Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir nærri tveggja milljarða niðurskurði á næsta ári til vegamála.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×