Búist við miklu tjóni á Kúbu 13. september 2004 00:01
Fellibylurinn Ívan hefur valdið nálægt sextíu manns fjörtjóni. Mest varð mannfallið á eyjunni Grenada. Þar fórust 34. Á Jamaíka fórust ellefu auk nokkurra sem féllu í átökum milli lögreglu og vopnaðra ræningja. Ívan var á laugardag skilgreindur sem fimmta stigs fellibylur. Það er alvarlegasti flokkur fellibylja en vindhraði fór í 73 metra á sekúndu í verstu hviðunum. Kúbverjar undirbjuggu sig um helgina af kappi fyrir hugsanlegri komu Ívans en óttast er að fellibylurinn geti valdið miklu tjóni þar. Eyjarskeggjar gátu þó hughreyst sig við það í gær að svo virtist sem verulega hefði dregið úr mætti fellibylsins. Mestum skaða olli Ívan á eyjunni Grenanda. Óttast var að mikið tjón yrði á Jamaíka en fellibylurinn fór aldrei inn á landið eins og óttast var. Þar var hins vegar nokkuð um róstur þar sem glæpamenn höfðu hugsað sér gott til glóðarinnar og ætluðu að nýta sér færið til gripdeilda á meðan íbúar og yfirvöld færu í skjól vegna veðurofsans. Þar féllu tveir ræningjar og fjórir lögreglumenn særðust í vopnuðum átökum. Á Jamaíka höfðu yfirvöld fyrirskipað hálfri milljón manna að yfirgefa heimili sín en einungis fimm þúsund urðu við þeim tilmælum. Eyjarskeggjar telja því að þar hafi farið mun betur en á horfðist og þakkaði forsætisráðherra landsins almættinu fyrir að stormurinn hafi stöðvast við strendur landsins. Milljónir manna eiga á hættu að verða fyrir tjóni af völdum fellibylsins þar sem hann færist yfir Kúbu og líklega í áttina að Flórída í kjölfarið. Talið er að nær hálf milljón manna þurfi að flýja heimili sín og leita skjóls á Kúbu en of snemmt er að spá fyrir um áhrif fellibylsins í Bandaríkjunum nái hann landi þar.
Erlent Fréttir Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Fleiri fréttir Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Sjá meira