Vill öll Norðurlöndin í ESB 2. september 2004 00:01
Laila Freivalds, utanríkisráðherra Svíþjóðar vill að öll ríki Norðurlanda, þar með talið Ísland, verði í Evrópusambandinu, svo þau geti nýtt sameiningarmátt sinn til góðra verka. Utanríkisráðherrann fylgir sænsku konungshjónunum í opinberri heimsókn hingað til lands í næstu viku. Utanríkisráðherra Svíþjóðar segir óskandi að Íslendingar gengju í Evrópusambandið en hún telur ekki að það spilli fyrir norrænu samstarfi að Ísland og Noregir standi utan við það. "Nei, ég get ekki sagt að það valdi vandræðum en það er áskorun. Það krefst þess að við hugsum um það að við eigum margt sameiginlegt hérna á Norðurlöndunum. Það er ekki alltaf sjálfgefið að öll löndin standi saman. Við neyðumst til að leggja okkur svolítið fram. Við verðum að tilgreina hvers vegna við höfum not af samvinnu hvert við annað. Ég held að vegna þess að við höfum orðið aðilar að mismunandi samtökum höfum við neyðst til að sjá þýðingu norræns samstarfs og þróa það." Og norrænt samstarf verður áfram mikilvægt? "Já svo sannarlega. Það er mikilvægt að þróa áfram þá samvinnu sem við höfum nú. Við eigum langa sögu saman, margar sömu hefðirnar, við höfum mikinn skilning á stöðu hvers annars. Þetta hefur byggst upp á löngum tíma. Þetta eigum við að nýta okkkur í framtíðinni. Ísland sem aðili að NATO og Svíþjóð sem aðili að ESB." Umhverfismál verða ofarlega á baugi í opinberri heimsókn konungshjónanna og það er málaflokkur sem utanríkisráðherra Svíþjóðar álítur brýnt að Norðurlöndin eigi náið samstarf um. Þó telur Laila Freivalds ólíklegt að virkjun Kárahnjúka eða hinar umdeildu hvalveiðar Íslendinga sem Svíar hafa sett spurningamerki við verði á dagskrá í viðræðum hennar við utanríkisráðherra Íslands í næstu viku. Á myndinni er Laila Freivalds ásamt utanríkisráðherra Danmerkur Per Stig Möller.
Erlent Fréttir Mest lesið „Vona að þú sofir vel“ Innlent „Ekki bara rekinn heldur á staðnum og fyrirvaralaust“ Innlent Búið að innsigla Kastrup: „Góður að taka á móti fólki en ömurlegur í tölvupóstum“ Innlent „Þetta er vítahringur sem endurtekur sig í sífellu!“ Innlent Kosningar í Ástralíu: Fylgi Íhaldsflokksins dvínar vegna framgöngu Trump Erlent Fyrirgefur fjölskyldunni og leitar sátta Erlent Tifandi tímasprengjan sem grunuð er um frelsissviptingu Innlent Sér fram á bjarta framtíð fyrir börnin þökk sé styrknum Innlent Í leyfi frá þingstörfum og flytur til New York Innlent Buðu mótherjum Björgólfs fyrst þjónustu sína Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ástralíu: Fylgi Íhaldsflokksins dvínar vegna framgöngu Trump Fyrirgefur fjölskyldunni og leitar sátta Gera úkraínsk ungmenni að sjálfsmorðssprengjumönnum Brand fær að ganga laus á meðan réttað er yfir honum Flokka Valkost fyrir Þýskaland sem öfgasamtök Segjast hafa lent í drónaárás á alþjóðlegu hafsvæði Drengnum sleppt en fleiri handteknir Munaði sex atkvæðum Waltz bolað úr embætti af Trump vegna Signal skilaboðanna Var svo „þreyttur á öllu“ að hann ákvað að aka inn í þvögu barna Börnum haldið innilokuðum í „hryllingshúsi“ í fleiri ár Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Getur frelsað El Salvador-fangann en vill það ekki Skrifa nú undir samninginn sem féll af borðinu eftir hitafundinn Sænskur blaðamaður dæmdur fyrir að móðga Erdogan Ellefu slasaðir og þrír alvarlega í Kaupmannahöfn Segja 4.700 Kimdáta hafa fallið eða særst Danakonungur til Grænlands í annað sinn á skömmum tíma Ungi morðinginn flúði nýverið af vistheimili Segir sveppaeitrunina hafa verið „hörmulegt óhapp“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Ungur maður handtekinn vegna morðanna í Uppsölum Fagnaði fyrstu hundrað dögunum í Hvíta húsinu Pakistan segir Indland mögulega gera árás á næstu klukkustundum Árásarmannsins enn leitað Þrír látnir eftir skotárás í Uppsölum Fella niður hluta ákæru á hendur meintum sveppamorðingja Íhuga að loka Everest öðrum en reyndu göngufólki Bannað að selja auðmönnum evrópskan ríkisborgararétt Orsakir rafmagnsleysisins sögulega enn óþekktar Sjá meira